Ræðum um spillingu

Ræðum um spillingu

Ræðum um spillingu

Ræðum um spillingu

Eitt meg­in­at­rið­ið í spill­ing­ar­vörn­um er að þora að taka á því þeg­ar fólk í póli­tísk­um stöð­um hef­ur sýnt af sér ábyrgð­ar­lausa hegð­un sem gref­ur und­an trú­verð­ug­leika þess.

Fyrir nokkrum misserum síðan átti ég ákaflega ánægjulegt spjall við Björn Þorláksson fjölmiðlamann. Spjallið fór fram í gegnum tölvu þar sem við vorum staddir hvor í sínu landinu og umræðuefnið var spilling á Íslandi. Nokkru síðar kom spjall okkar út sem kafli í bók Björns, Besti vinur aðal – skaðasaga spillingar á Íslandi. Bókin fékk ágætis viðbrögð og vakti nokkra athygli. Þótt auðvitað séu viðbrögð misjöfn við bókum af þessu tagi má fullyrða að bókin hafi verið þörf hugvekja um mikilvægt efni í íslensku samfélagi. Mögulega má segja að Birni og viðmælendum hans hafi legið of mikið á hjarta og verið full persónulegir, eins og einhverjir gagnrýnendur héldu fram, en þetta voru allt þarfar vangaveltur um umræðuefni sem margir telja að fólk veigri sér við að ræða og greina. Spilling er auðvitað til staðar á Íslandi og við þurfum svo sannarlega á öllum mögulegum spillingarvörnum að halda. Hún kann að vera annars eðlis en víða annars staðar – og hún er blessunarlega minni en á mörgum stöðum – en möguleg sérstaða hennar krefst þess að umræða um hana sé einmitt opin og fjörleg. Mestu skiptir að sem flestir ræði um upplifun sína af henni. Í samtali mínu við Björn lagði ég mesta áherslu á ábyrgðarskilning fólks á Íslandi í pólitískum áhrifastöðum og hvernig sá skilningur, eða skilningsleysi, byggir upp, eða eyðir, trausti í samfélaginu.

Sumarið 2024 fékk ég símtal frá fréttamanni RÚV sem spurði mig út í nýútkomna skýrslu frá GRECO, samtökum ríkja innan Evrópuráðsins gegn spillingu. Skýrslan sagði að íslensk stjórnvöld hefðu mætt níu af átján tilmælum um spillingarvarnir að fullu. Eftir að hafa kynnt mér skýrsluna betur fór ég í viðtal við RÚV þar sem ég lagði áherslu á að það væri frábært að svona ytra jafningjamat færi fram sem héldi stjórnvöldum við efnið. Það væri svo túlkunaratriði hvaða einkunn íslensk stjórnvöld væru í raun og veru að fá í úttektinni. Sjálfur liti ég svo á að þetta væri ekki alslæmt, íslensk stjórnvöld væru að taka sig á samkvæmt skýrslunni og komin áleiðis með margt. Það tæki tíma að mæta áherslum GRECO að fullu og tónninn í skýrslunni væri fremur hvetjandi heldur en að pirrings gætti til íslenskra stjórnvalda. Íslensk stjórnvöld hafi áður fengið falleinkunn og að sú væri ekki raunin að þessu sinni.

„Lengi vel veittu þeir flokkar sem fóru með forsætisráðuneytið spillingarvörnum litla sem enga athygli

Viðtalið var spilað í fréttatíma og svo birtist stutt frétt um viðtalið við mig á vefsvæði RÚV. Fljótlega á eftir barst mér tölvupóstur frá Atla Þór Fanndal, sem hefur verið einn ötulasti baráttumaður gegn spillingu á Íslandi, meðal annars sem framkvæmdastjóri og talsmaður Íslandsdeildar Transparency International. Atli var ósáttur við jákvæðan tón minn í fréttinni og fannst ég gera lítið úr gagnrýnisröddum víða að úr samfélaginu (ekki síst frá honum sjálfum) um hvernig íslensk stjórnvöld drægju lappirnar í spillingarvörnum. Mér fannst leitt að hafa valdið honum vonbrigðum og lofaði í svarpósti að skýra mál mitt betur. Þessi grein er síðbúin tilraun til þess. Að vissu leyti er túlkun á úttekt GRECO nokkurs konar spurning um hvort glasið sé hálftómt eða -fullt. Sögulega má segja að gagnrýnendur eins og Atli (og GRECO áður) hafi rétt fyrir sér með að Ísland hafi varla veitt spillingarvörnum athygli. Þótt Ísland hafi lengi verið meðal GRECO-ríkja virtist takmarkaður vilji til að taka á málum árum saman. Lengi vel veittu þeir flokkar sem fóru með forsætisráðuneytið spillingarvörnum litla sem enga athygli. Vissulega komust þessi mál á hreyfingu með nýjum stjórnvöldum eftir fjármálahrunið 2008 en sú ríkisstjórn sem sat í framhaldi af þeim hræringum öllum hafði töluvert margt á sinni könnu og náði varla nema rétt að koma þessum málum af stað.

Til þess að svara Atla betur skulum við athuga hvað skýrsla GRECO sagði um stöðuna á Íslandi árið 2024. Þau 18 atriði sem Ísland þurfti að klára að ganga frá fyrir síðustu úttekt sneru að atriðum eins og skráningu siðareglna fyrir ólíka hópa innan pólitísks valds og stjórnsýslu, formlegum leiðum til að vekja þessa hópa til vitundar um heilindi í hlutverkum sínum og uppsetningu ferla og kerfa til hagsmunaskráningar. Allt eru þetta atriði sem getur verið býsna flókið að ganga frá á fullnægjandi hátt og því mögulega ekki undarlegt að þarna hafi enn vantað eitthvað upp á. Einungis eitt atriði var ekki komið lengra en með stofnun starfshóps sem engu hafði skilað af sér. Það þótti óásættanlegt í úttektinni. Þegar skýrslan kom út fannst mér það starf sem þó hafði verið lagt í spillingarvarnir vera það umfangsmikið að „ekki mætti saka stjórnvöld um að hafa stungið þeim undir stól“, eins og ég orðaði það. Þó verður að taka það fram að Ísland á langt í land með að ná ágætiseinkunn. Uppfyllt skilyrði tryggja mögulega fyrstu einkunn (svo við höldum okkur við samlíkinguna við skólaeinkunn) en til þess að hljóta ágætiseinkunn þarf að sýna fram á að skilyrðin hafi verið innleidd á þann hátt í íslenskt stjórnkerfi að víðtækur skilningur hafi skapast innan kerfisins á þeim meginviðmiðum sem reglum og gátlistum er ætlað að ná fram. Mögulega var ég of jákvæður í túlkun minni á stöðunni, en ég get einnig viðurkennt að það þyrmir nokkuð yfir mig þegar ég hugsa til framtíðar og hugsa um öll þau ótal skref sem enn þarf að taka svo tilmæli GRECO verði fullkomlega innleidd.

„Allt sem sonurinn sagði kom á daginn þótt þingmaðurinn hafi sýnt af sér þann manndóm að lýsa syni sínum sem ósannindamanni til að bjarga eigin skinni

Undir lok starfstíma síðustu ríkisstjórnar átti sér stað atburður hér á Íslandi sem mögulega hjálpar til við að færa okkur frá fræðilegri umræðu, í þeim stíl sem úttekt GRECO er sett fram í, og í átt að raunverulegum aðstæðum íslensks stjórnmálalífs. Í raun og veru lærðum við meira um stöðuna en nokkur úttekt gæti gert. Fréttastofur fengu í hendurnar leynilegar upptökur þar sem sonur áhrifamikils þingmanns og fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins lýsti pólitískum hrossakaupum varðandi framtíð hvalveiða við strendur Íslands. Allt sem sonurinn sagði kom á daginn þótt þingmaðurinn hafi sýnt af sér þann manndóm að lýsa syni sínum sem ósannindamanni til að bjarga eigin skinni. Í þessum dæmum kristallast sá langi vegur sem er á milli þess að mæta lágmarksviðmiðum, til dæmis að skrá siðareglur og setja upp kerfi um hagsmunaskráningu, og að sjá til þess að fólk í pólitískum stöðum sýni fram á nokkra vitund um til hvers er ætlast af því. Umræðuleysið og skortur á pólitískum afleiðingum (þótt ráðherrann sem átti hlut að máli hafi reyndar síðar yfirgefið hið pólitíska svið) sýndi einnig hversu stutt á veg við erum komin með að láta spillingarvarnir ná raunverulegri fótfestu. Slík fótfesta verður ekki einungis til innan stjórnkerfisins heldur í samfélaginu öllu.

Það er vel kunn saga að síðasta kjörtímabil reyndist Vinstrihreyfingunni – grænu framboði erfitt. Forsetaframboð formanns flokksins gekk ekki upp eins og flestir höfðu líklega spáð að það myndi gera. Persónulega var ég ekki viss um að framboðið væri góð hugmynd (eins og ég lýsti í viðtali við þennan miðil) en það hvarflaði ekki að mér að framboðið myndi leiða til þeirra gríðarlegu neikvæðu viðbragða sem síðar komu fram. Fráhvarf Katrínar Jakobsdóttur leiddi svo beint og óbeint til kosninga síðar á árinu þar sem hreyfingin hlaut slæma útreið. Þegar rykið hefur sest eftir þessa atburði alla hlýtur að vera tímabært að horfa aðeins til baka og velta því fyrir sér hverju Katrín náði þó fram í stjórnarsamstarfi með leiðtogum stjórnmálaafla sem í besta falli hafa sýnt fullkomið áhugaleysi gagnvart öllu því sem GRECO stendur fyrir. Dæmið um spillinguna í kringum útgáfu hvalveiðileyfisins sýnir einnig fram á að sumt pólitískt samstarfsfólk var ekki einungis áhugalaust heldur einfaldlega andsnúið því að spillingarvarnir séu hluti af íslensku stjórnkerfi. Persónulega finnst mér núna blasa við að Katrín hafi unnið nokkurt þrekvirki í að koma þessum málum þó í þann farveg sem þau núna eru í. Hver veit nema ég hefði átt að segja í viðtalinu við RÚV sumarið 2024 að forsætisráðuneytið hafi að minnsta kosti ekki stungið spillingarvörnum undir stól.

Ef ég væri spurður núna hvað ég telji að gerist á næstu misserum varðandi spillingarvarnir á Íslandi þá er erfitt að lesa í framtíðina. Verðum við einhvern tíma fyrirmyndarland í augum Evrópuráðsins þegar kemur að vörnum gegn spillingu? Það er mikilvægt að mæta tilmælunum (þannig að bjartsýni mín hafi ekki verið misráðin) og um leið er mikilvægt að sýna skilning á anda þeirrar hugsunar sem GRECO hefur að leiðarljósi í sínum störfum. Núverandi ríkisstjórn og íslensk stjórnsýsla þurfa bæði að mæta ábendingum GRECO og sýna í verki að hugsunin á bak við það sem þarf að innleiða sé komin til að vera. Eitt meginatriðið í spillingarvörnum er að þora að taka á því þegar fólk í pólitískum stöðum hefur sýnt af sér ábyrgðarlausa hegðun sem grefur undan trúverðugleika þess. Afskipta- og áhugaleysi leiðtoga sem gera ekki kröfu um að fólk stígi til hliðar og taki ekki af skarið þegar slík mál koma upp er það sem lætur spillingu ná fótfestu. Smæðin og náin tengsl í íslensku samfélagi hafa mögulega hjálpað til að skapa jarðveg þar sem spillingarvarnir skjóta illa rótum. Núverandi forsætisráðherra hefur sýnt í nokkrum vandræðamálum, sem snúa reyndar ekki að spillingu, að hún tekur meginviðmiðin fram yfir tryggðina við einstaklinga. Kjarninn í þeim málum var að almannahagsmunir – friður um hlutverk og embætti – voru teknir fram yfir þá persónulegu. Ef slík hugsun nær fótfestu þá tel ég það vera ekki síður mikilvægt heldur en að koma til móts við gátlista GRECO.

#ræðum #spillingu


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26789/raedum-um-spillingu/

📰 Aðrar fréttir

Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Hlátra­sköll hjá heitum hönnuðum - Vísir
Hönnuðir og listamenn stigu á stokk og kynntu það sem þeir höfðu aðallega verið að fást við að undanförnu í sinni sköpun. Mikið var um hlátrasköll og ...
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
📅 29.10.2026 👁️ 1
Meirihlutinn í Reykjavík vill byggja ofan á bílastæði - „Hér gefst tækifæri til að nýta betur land“
Fulltrúar meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur í umhverfis- og skipulagsráði fagna hugmyndum um að byggð verði blönduð byggð ofan á bílastæði í Ármúl...
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Langflestir farnir að nota gervigreind til að sækja fréttir
Tæplega 71 prósent Íslendinga nota gervigreind til að afla sér frétta. Karlar eru líklegri til þess að gera það oftar en konur.Þetta er niðurstaða kön...
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
📅 29.10.2026 👁️ 1
Nýr alþjóðaflugvöllur talinn marka tímamót í ferðamennsku
Nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í dag við Ilulissat, þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður ekki síst f...
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
📅 29.10.2026 👁️ 1
Burnham says he wants to cut welfare bill 'as soon as we possibly can'
The prime minister did not outline a timetable, while opponents questioned the Budget's lack of detail on welfare reform.
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
📅 29.10.2026 👁️ 1
Nýjar álögur „óásættanleg aðför“ að atvinnulífi Suðurlands
Sveitarfélög á Suðurlandi krefjast þess að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og segja að með nýjum álögum...
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
ChatGPT trónir á toppnum - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Almannaróm. Af þeim sem nýta sér gervigreind á íslensku kjósa tæp 89 prósent þeirra að not...
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks - Vísir
Melkorka greindi frá þessari ákvörðun sinni á Instagram-hringrás sinni í gær. „Eftir að hafa hugsað málið fram og til baka vildi ég tilkynna að ég er ...
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Tvö mann­skæð slys vekja upp spurningar um öryggi - Vísir
Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína...
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
📅 29.10.2026 👁️ 2
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap
Bandaríski gamanmyndaleikarinn Jon Lovitz hefur svarað ásökunum Crystal Harris, ekkju Playboy-stofnandans Hugh Hefner, um að hann hafi verið einn mest...
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
📅 29.10.2026 👁️ 2
LGBTQ+ handbókin: Skynsemi og vísindi hafa sigur í Suður-Danmörku
Það er mikill sigur fyrir heilbrigða skynsemi að Syddanmark-hérað skuli nú loksins hafa fellt tillöguna um hina mjög umdeildu LGBTQ+ handbók með atkvæ...
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar - Vísir
Í ákæru á hendur manninum, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 13, segir að hann hafi veist að konunni með ofbeldi og reynt að svipta ha...
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
📅 29.10.2026 👁️ 2
Offshore workers turn to weight-loss jabs to meet new helicopter weight limits
From Sunday anyone weighing more than 19st 7Ib (124kg) will be banned from flying to an offshore platform.
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
📅 29.10.2026 👁️ 2
Flávio Bolsonaro calls himself 'leader of Brazil' after election loss
The defeated presidential candidate says he will lead the opposition from the US.
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hvorug flokkablokkin hefur tryggt sér meirihluta
Hvorug stærstu flokkablokkanna í ísraelskum stjórnmálum hefur tryggt sér meirihluta atkvæða í þingkosningunum sem haldnar voru á þriðjudag. Flokkur fo...
Verðbólgan enn „óþægilega há“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Verðbólgan enn „óþægilega há“
Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið. Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við Háskól...
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Fengu ráð­gjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir upp­sagnirnar - Vísir
„Það er nú þannig að fjárhagsstaða bæjarins kallar á miklar aðgerðir. Við þurfum að spara upp undir þrjá milljarða á næsta ári og þetta er liður í því...
Þarft þú meira járn?
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þarft þú meira járn?
Þarft þú meira járn? Fréttin29. október 2026Heilbrigðismál, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Er járnið í líkamanum of lágt þrátt ...
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Spesíur Elenoru: Jóla­klassík sem tekur að­eins 30 mínútur - Vísir
Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík. Uppskriftin á...
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
„Nú erum við trúlofaðar dúllur“ - Vísir
Elín greindi frá tímamótunum með færslu á samfélagsmiðlinum Instagram, þar sem hún er með tæplega tólf þúsund fylgjendur.  „Mánaðarævintýri í Vestur-Á...
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
📅 29.10.2026 👁️ 3
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB
Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: M...
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
📅 29.10.2026 👁️ 3
Minnst þrettán drepnir í drónaárás á lestarstöð
Að minnsta kosti þrettán týndu lífi í dag þegar þrýstiloftsknúinn rússneskur árásardróni skall á lestarpalli þar sem fjölmenni stóð í borginni Dnípró ...
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
📅 29.10.2026 👁️ 3
Mikill niðurskurður í Hafnarfirði: 23 störf lögð niður og laun yfirstjórnar fryst
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Í tilkynningu frá Haf...
Búið að ákæra son þingmanns
📅 29.10.2026 👁️ 3
Búið að ákæra son þingmanns
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann sem grunaður er um að hafa orðið föður sínum til bana. Maðurinn er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur.Vísir grei...
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“ - Vísir
Samkvæmt könnun Maskínu finnst þremur fjórðu hlutum íslensku þjóðarinnar að Ísland ætti ekki að senda lag til keppninnar ef Ísrael verður á meðal þátt...
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hagstofustjóri blæs á fullyrðingarnar um uppsögn Hjartar: „Það myndi aldrei vega í svona ákvörðun“
Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri segir ekkert til í fullyrðingunum um að Hirti J. Guðmundssyni hafi verið sagt upp á Hagstofunni vegna pólitís...
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu
Karlmaður sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí hefur verið ákærður í málinu. Frá þessu greinir Vísir en ...
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
📅 29.10.2026 👁️ 3
Dalvískt fyrirtæki í hart vegna einbýlishúsalóðar - Segir sína lóð ónothæfa
Fyrirtæki á Dalvík lagði fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna mannvirkja og framkvæmda á lóð, þar sem stendur einbýlishús, ...
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hafnar á­sökunum um kosningasvindl - Vísir
Útlit er fyrir að þrátefli muni myndast aftur í ísraelskum stjórnmálum. Vilji Benjamín Netanjahú halda áfram sem forsætisráðherra myndi hann annaðhvor...
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sheer courage of staff member who fought attacker with frying pan
Witnesses say Samir Zitouni is a 'real-life hero' who told attacker "We love you, we can help you".
Kjarasamningar kennara í hættu
📅 29.10.2026 👁️ 3
Kjarasamningar kennara í hættu
Formaður Kennarasambands Íslands segir allt stefna í forsendubrest gildandi kjarasamnings. Hann telur ólíklegt að félagsmenn í Kennarasambandinu, sem ...
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum
Gyðingahatur á Íslandi – hótanir, hatursorðræða og lof um nasisma á samfélagsmiðlum Fréttin29. október 2026Hatursorðæða, InnlentLeave a Comment Ummæli...
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
📅 29.10.2026 👁️ 3
Cappadocia: Rock collapse kills two in Turkey's Cappadocia, local media reports
One of the regions famous rock formations, known as "fairy chimneys", reportedly collapsed outside an open-air museum.
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Hirti sagt upp störfum hjá Hag­stofunni - Vísir
Hjörtur greinir frá uppsögninni í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook, Vísir hefur ekki náð af honum tali vegna málsins. Þar greinir hann frá því að f...
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
📅 29.10.2026 👁️ 3
Woman brutally attacked during violent mugging in Tenerife
A 52-year-old woman needed medical treatment after being pulled to the ground by her hair and beaten during a violent robbery in Puerto de la Cruz, Te...
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Missti röddina á ögur­stundu - Vísir
„Þá er minni keppni víst lokið áður en hún hófst almennilega, þar sem ég þurfti að segja mig frá keppninni vegna raddleysis þegar komið var að því að ...
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
📅 29.10.2026 👁️ 3
Philippine police obtain warrant to search Thomas Markle's devices
Images of child sexual abuse allegedly belonging to Meghan Markle's father had reportedly been found in his former home in the Philippines.
Vísbendingar um að borgin hafi markvisst sagt upp fólki út af veikindum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Vísbendingar um að borgin hafi markvisst sagt upp fólki út af veikindum
Formaður Sameykis gagnrýnir ummæli borgarstjóra í Kastljósi og segir ljóst að borgin hafi farið of geyst í uppsagnaraðgerðir. Auk þriðju hrinu uppsagn...
Sonur þing­mannsins á­kærður - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Sonur þing­mannsins á­kærður - Vísir
Þetta staðfestir Sigurður Ólafsson saksóknari.  Gæsluvarðhald mannsins rann út þann 22. október og var það framlengt. Sömuleiðis var gefin út ákæra í ...
Repúblikanar ósáttir við að Demókratar bjóði fram nafna síns manns
📅 29.10.2026 👁️ 3
Repúblikanar ósáttir við að Demókratar bjóði fram nafna síns manns
Ríkisstjórinn í Alaska, repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings...
Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata
📅 29.10.2026 👁️ 3
Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata
Ríkisstjórinn í Alaska, repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings...
Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við
📅 29.10.2026 👁️ 3
Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra og telur að úrræðið hafi ekki brugðist ...
Elliði segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora í strætó af því hann gengur úr Mjóddinni
📅 29.10.2026 👁️ 3
Elliði segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora í strætó af því hann gengur úr Mjóddinni
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora að taka strætó heim af því að vagninn gengur úr Mjóddinni. Hann segir líka...
Allt logar vegna uppsagnar Hjartar: „Þessu verður að mótmæla kröftuglega“
📅 29.10.2026 👁️ 3
Allt logar vegna uppsagnar Hjartar: „Þessu verður að mótmæla kröftuglega“
Allt logar í athugasemdum eftir að Hjörtur J. Guðmundsson greindi frá því að honum var sagt upp á Hagstofunni. Telja margir að uppsögnin sé af pólitís...
Halloween celebrations cancelled across the Canary Islands following Toledo train tragedy
📅 29.10.2026 👁️ 3
Halloween celebrations cancelled across the Canary Islands following Toledo train tragedy
Halloween celebrations and other weekend events are being cancelled or postponed in parts of the Canary Islands following the tragic train accident in...
„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
„Hörður Gríms­son er orðinn lúxus­vanda­mál“ - Vísir
Þekktastur er Stefán Máni fyrir myrkar glæpasögur og hefur fjórum sinnum hlotið Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, síðast í fyrra fyrir bókin...
23 sagt upp og þrír endurráðnir
📅 29.10.2026 👁️ 3
23 sagt upp og þrír endurráðnir
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að fækka um 18,6 stöðugildi hjá bænum á næsta ári. Með þessu ætlar bærinn að lækka rekstrarkostnað um 330 millj...
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 13, officials say
📅 29.10.2026 👁️ 3
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 13, officials say
Dnipro regional head Oleksandr Hanzha said at least 10 others were wounded in the attack, including an 11-year-old boy.
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 14, officials say
📅 29.10.2026 👁️ 2
Russian drone attack on Ukrainian train station kills at least 14, officials say
At least 14 others were wounded in the attack in the central city of Dnipro, including an 11-year-old boy.
Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ. Þar segir að bæjarráð hafi samþykkt á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir...