Ráða múslimar úrslitum í Svíþjóð

Jón Magnússon skrifar:
Þingkosningar fara fram í Svíþjóð í dag. Mjótt er á munum skv. skoðanakönnunum en síðustu kannanir segja að vinstri blokkin muni fá 2% meira fylgi en hægri blokkin. Í fréttum er tönnlast á að þetta séu sögulegar kosningar, en ekki verður séð að þær verði sögulegri en síðustu nokkrar þingkosningar í Svíþjóð.
Nema e.t.v. vegna þess,að múslimskir innflytjendur gæti ráðið úrslitum. Þeir eru um 5% kjósenda og kjósa til vinstri. Eðlilega. Vinstri blokkin mun tryggja þeim framlög og fríðindi sem hægri blokkin er líkleg til að skera niður eða afnema.
Fari svo að vinstri blokkin í Svíþjóð vinni vegna þess að múslimar leggi þeim myndarlegt lið, þá er það ekki einsdæmi. Í Frakklandi, Bretlandi og Belgíu eru þeir helmingi fleiri á kjörskrá og kjósa nær alfarið til vinstri.
Það ætti að vera til umhugsunar fyrir alla þá sem unna þjóð sinni og velferð lands síns og landa, að afætu lið undir gunnfána aukinnar skattheimtu á vinnandi fólk ráði því hverjir fara með völdin í landinu. Þarf annað en að skoða fréttir Mbl. síðustu daga til að sjá hve illa er komið fyrir okkar og hvað það kostar gríðarlegar fjárhæðir af skattfé borgaranna.