Fyrrverandi Playboy-kanínan Holly Madison rifjaði upp í viðtali við Page Six myrku hliðar lífsins á Playboy-setrinu, en Holly bjó á setrinu frá 2001 til 2008 á meðan hún var í sambandi með Hugh Hefner.
Hún var aðeins 21 árs þegar hún flutti inn og í fyrstu leit hún á húsið sem öruggt skjól. Raunin hafi þó verið önnur.
Í viðtalinu segir hún að stemningin hafi verið hörð, samkeppnin mikil og að fólk hafi fljótt getað snúist hvert gegn öðru. „Það var svolítið ógnvekjandi,“ segir Holly.
Holly segir einnig að ungar konur í skemmtanabransanum séu oft berskjaldaðar fyrir fólki sem vilji nýta sér þær, og hún hafi á sínum tíma talið Playboy-setrið vera öruggari kost en einhvern annan. Hún neitar því að hafa verið með Hugh peninganna vegna og segir að hún hafi frekar verið heilluð af heiminum í kringum hann og tækifærunum sem honum fylgdu.
Holly, sem varð þekkt í raunveruleikaþáttunum The Girls Next Door, segir að hún hafi núna sætt sig við þennan kafla í lífi sínu. Hún stýrir nú þáttunum Lethally Blonde sem má finna á HBO Max, þar sem fjallað er um dökkar hliðar frægðarinnar og skemmtanabransans og mér finnst hún fullkomin í það hlutverk.
Stjörnufréttir Evu Ruzu eru í samvinnu við Extra og Sjónvarp Símans!