Í myndbroti úr viðtalinu, sem má horfa á hér að neðan, segir Kristrún að „planið“ sem Samfylkingin talaði um fyrir kosningar sé byrjað að virka.
Er ekki smá partur af þér sem óttast að mögulega gangi þetta ekki upp? Stendurðu alveg keik, getur horft í augun á landsmönnum og sagt: „Planið mitt mun ganga, þetta verður betra.“?
„Planið er byrjað að ganga og ég hvet bara alla landsmenn og fjölmiðlamenn til að kynna sér útspil Samfylkingarinnar í aðdraganda kosninga, orkumálin. Við erum búin að samþykkja tvo ramma á þessu ári. Það voru erfiðleikar eiginlega allt síðasta kjörtímabil að klára rammamálin,“ segir Kristrún.
Allt viðtalið við Kristrúnu má sjá í Íslandi í dag í kvöld klukkan 18:55, í opinni dagskrá á Sýn og Vísi.
En, hvað með efnahagsmálin?
„Já, en málið er að efnahagsmálin eru ekki bara eini parturinn af þessu plani, vegna þess að orkumálin eru stór hluti af hagvaxtargetu kerfisins. Ef það á að laga efnahagsmálin, ef það á að taka til í efnahagsmálunum, þá þurfum við að vinna í hagvaxtargetunni líka. Það sama á við í heilbrigðismálum, sem við vorum líka kosin út á og Alma hefur staðið sig stórkostlega í því á mörgum sviðum heilbrigðismálanna. Það er eins í húsnæðismálunum, sem er nú stór partur af efnahagsmálunum. Við samþykktum hérna frumvarp til að hemja á Airbnb, ný húsaleigulög, við erum með ákvæði inni núna eftir nýja löggjöf sem á að koma í veg fyrir brask á húsnæðismarkaði“ segir Kristrún.
Bendir Kristrún einnig á að bakslag hafi komið í að lækka vexti vegna stöðunnar í Miðausturlöndum.
„Allt þetta, Elísabet, er partur af því að taka til í efnahagsmálunum. Við höfum líka séð vexti þrátt fyrir allt lækka heilt yfir frá því að ríkisstjórnin tók við. Já, við fengum bakslag að miklu leytinu til vegna stöðunnar í Miðausturlöndum. Það verða líka svona kannski einhverjar breytingar sem koma til vegna þess að við erum að breyta kerfum, við erum að breyta gjaldskrám, og árangur er aldrei bara svona bein lína upp á við. En það er strax árangur til staðar,“ segir hún.
Ísland í dag hefst strax að loknum kvöldfréttum í kvöld, klukkan 18:55, í opinni dagskrá á Sýn og Vísi.