Áhrifavaldurinn Patrekur Jaime fer í nudd þrisvar til fjórum sinnum í mánuði „til að fúnkera í íslensku samfélagi“ og segir frá skrýtnasta nuddi sem hann hefur farið í, en það er í þokkabót það furðulegasta sem hann hefur upplifað yfir höfuð. Patrekur greinir frá þessu í myndbandi á TikTok sem hefur slegið rækilega í gegn. Hann var í Kínahverfinu í New York og sá nudd auglýst fyrir 30 bandaríska dali. Hann og vinkona hans ákváðu að skella sér saman.
Patrekur segir frá skrýtnasta nuddi sem hann hefur upplifað: „Ómægod, ég er að fara að fá glaðan endi og ég á ekkert í það“