Fyrrverandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, Pam Bondi, hefur verið greind með krabbamein í skjaldkirtli. Hún greindist stuttu eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti vék henni úr embætti í byrjun apríl.
Bondi sagði í samtali við fréttaveituna CBS að hún væri nú í meðferð sem meðal annars fæli í sér skurðaðgerð sem hún undirgekkst fyrir nokkrum vikum.
Hún heldur áfram að vinna þrátt fyrir greininguna og mun taka sæti í nýju ráðgjafarráði Hvíta hússins um gervigreind.