Páll skipstjóri í stríði við Vísi
Vísir taldi greinina ómálefnalega
Skoðanagreinin sem Páll fékk ekki birta var andsvar við pistli Kristins Hrafnssonar, fjölmiðlamanns og ritstjóra Wikileaks. Eins og áður hefur komið fram var Kristinn vitni í dómsmáli Páls gegn RÚV og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi ritstjóra Kveiks. Réttarhaldið fór fram fyrir luktum dyrum en Kristinn fjallaði síðar um reynslu sína og gagnrýndi málatilbúnað skipstjórans.
Samkvæmt Páli hafnaði Vísir birtingu greinarinnar á þeim forsendum að hún væri ómálefnaleg og innihéldi ærumeiðandi ummæli. Í kjölfarið birti hann greinina á Facebook-síðu sinni og sakaði miðilinn um tvöfalt siðferði.
Deilt um „skæruliðadeild“ Samherja
Í umfjöllun sinni bendir Páll á að Vísir, líkt og fleiri fjölmiðlar, hafi áður tekið gagnrýnislaust upp frásagnir frá Heimildinni þess efnis að hann hafi verið foringi í svokallaðri „skæruliðadeild“ Samherja. Því vísar hann alfarið á bug og segist hvorki kannast við tilvist slíkrar deildar né hafa gegnt slíku hlutverki.
Hann viðurkennir þó að hafa gagnrýnt vinnubrögð blaðamanna og spyr hvort þeir séu hafnir yfir gagnrýni. Í umræddri grein vísar hann jafnframt til fyrri aðkomu Kristins Hrafnssonar að málefnum Samherja og nefnir heimildir sem, að hans mati, sýni að fjölmiðlamaðurinn halli réttu máli.