Norska ríkissjónvarpið NRK hefur hlotið nokkra gagnrýni þar í landi fyrir umræðuþátt sem sýndur var í gærkvöldi. Þar var rætt við unga konu og eiltíð eldri karlmann sem hún sakar um kynferðislega áreitni. Karlmaðurinn neitar því en skilaboð sem hann sendi konunni á Snapchat virðast renna stoðum undir ásakanir hennar. Það sem hefur gert þáttinn enn umdeildari er að konan og maðurinn kynntust í gegnum starf þeirra beggja í ungliðahreyfingu þess stjórnmálaflokks sem mælist nú með mest fylgi í skoðanakönnunum.
Óvenjulegur umræðuþáttur harðlega gagnrýndur - Ræddu við meintan geranda og konuna sem sakar hann um kynferðislega áreitni