Möguleg stofnun Evrópuhers var áberandi í tali formanns Heimssýnar í þættinum Sama viðtalið um ESB. Hann segir að í Evrópu sé mikill þrýstingur á aukið hernaðarsamstarf og að svo gæti farið að íslensk ungmenni verði þvinguð til að ganga í herinn fari svo að Ísland gangi í Evrópusambandið.
Í viðtalinu við Baldvin Þór ræddi Haraldur um kostnaðinn sem fylgi því að ganga í ESB sem hann telur nema rúmlega hundrað milljörðum þegar allt er talið. Á móti komi aðeins örfáir millarðar í styrki sem erfitt sé að meta. Verði niðurstaðan nei í ágúst segir hann að líklega verði hlé á evrópuumræðunni í um það bil 10 ár en svo fari Evrópusinnar aftur af stað.
Sér ekki að vextir lækki við inngöngu í ESB
Patrikur spurði Harald hvort að ungt fólk myndi hagnast við inngöngu í ESB, til dæmis með lágum húsnæðisvöxtum. Haraldur taldi svo ekki vera. Lægri vextir væru fyrst og fremst verkefni íslenskra stjórnmálamanna. Þá sagði hann húsnæðisverð í Evrópu víða mjög hátt og alls ekki þannig að evrópsk ungmenni gætu alls staðar keypt sér húsnæði.
Haraldur sagði líka að Ísland mætti ekki láta forsetatíð Donalds Trumps hafa of mikil áhrif á ákvarðanir í dag. Hann yrði farinn eftir tvö ár en möguleg innganga í ESB myndi breyta Íslandi til frambúðar.
Patrikur var hins vegar ekki sannfærður um rök Haraldar um húsnæðisverð í Evrópu. Dæmið hafi verið frá París en það sé stórborg og húsnæðisverð þess vegna hærra þar. Hann tók Billund í Danmörku sem dæmi og sagði ólíklegt að það væri mjög dýrt að búa þar.