Víkingurinn Óskar Borgþórsson hefur verið valinn leikmaður mánaðarins í Bestu deildinni í fótbolta.
Óskar var valinn leikmaður mánaðarins af sjálfri Bestu deildinni en hann var frábær með Íslandsmeisturum og toppliði Víkings.
Óskar skoraði sjö mörk og lagði upp fjögur í sex leikjum með Víkingi í maí en þeir unnust allir.