Hjalti Þór Vilhjálmsson er nýr þjálfari karlaliðs ÍA í körfubolta.
Þetta staðfestu Skagamenn í gær en Hjalti er margreyndur þjálfari sem hefur stýrt karlaliðum Álftaness, Keflavíkur, Fjölnis og Þórs Akureyri og kvennaliði Vals.
ÍA féll úr úrvalsdeildinni í vor og leikur því í næstefstu deild á komandi leiktíð.
„Með ráðningu Hjalta stefnir ÍA að því að efla enn frekar metnaðarfullt starf sitt innan félagsins og byggja upp öflugt lið til framtíðar. Félagið bindur miklar vonir við samstarfið og hlakkar til komandi verkefna undir stjórn Hjalta,“ stendur meðal annars í tilkynningu Skagamanna.