Í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið kjósendur Viðreisnar með störf formanns eigin flokks mest allra, en tæplega 96% kjósenda flokksins eru ánægðir með störf Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.Raunar fylgja hinar valkyrjurnar fast á eftir. Ánægja Samfylkingarfólks með störf Kristrúnar Frostadóttur er tæp 94% og ríflega 93% kjósenda Flokks fólksins eru ánægðir með Ingu Sæland. Þá er rösklega 90% kjósenda Miðflokksins ánægður með störf Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Orðið á götunni: Mest ánægja með störf Þorgerðar Katrínar – áberandi lítil ánægja með Guðrúnu og Lilju