Þrjú kvöld í röð hefur slegið í brýnu milli lögreglu og mótmælenda í Albaníu. Að minnsta kosti 160 voru handteknir í gær. Mótmælendur hafa ráðist að opinberum byggingum og krefjast afsagnar stjórnvalda.
Mótmælendur hafa kveikt í opinberum byggingum og beint spjótum sínum að ráðuneytum. Þessi mótmælaalda hófst í háskólum þar sem nemendur kröfðust afsagnar forsætisráðherrans Edi Rama vegna lélegra aðstæðna í skólum og hárra skólagjalda.
„Landið okkar þarf stillingu, meira en nokkru sinni fyrr. Við þurfum samtal og ábyrgð. Við megum ekki láta ofbeldi sundra okkur, frekar þurfum við að hlusta hvert á annað og finna lausnir, fyrir þjóðina og fyrir Albaníu.
Ég hvet alla til þess að sýna stillingu, forðast ofbeldi og láta ósætti ekki grafa undan stöðugleika og stjórnskipan landsins,“ sagði Bajram Begaj, forseti Albaníu, í sjónvarpsávarpi í gær.
Stjórnvöldum mótmælt mánuðum saman
Segja má að þessi alda hafi stigmagnað mótmæli síðustu mánaða sem hófust vegna framkvæmda við ferðamannaparadís á verndarsvæði.
Jared Kushner og Ivanka Trump, tengdasonur og dóttir Bandaríkjaforseta, eru meðal fjárfesta en á framkvæmdasvæðinu er fyrir þjóðgarður og griðastaður um 200 fuglategunda sem sumar eru í útrýmingarhættu.
Rama forsætisráðherra tjáði sig um mótmælin í morgun og segir erlend öfl standa að baki eyðileggingunni. Grímuklætt fólk brenni og eyðileggi til þess að kynda undir ólgu og koma í veg fyrir tilraunir stjórnvalda til þess að ganga í Evrópusambandið.
Það stefnir í annað róstursamt kvöld. Hundruð mótmælenda fóru af stað í morgun og hafa komið sér fyrir við menntamálaráðuneyti landsins.