„Stríðið mun kosta 155 milljarða evra á næsta ári, og við þurfum að minnsta kosti sjötíu milljarða frá ykkur, fyrir hervarnir, loftvarnir og viðnámsþrótt okkar,“ sagði Zelensky við leiðtoga Evrópusambandsríkjanna, á fundi þeirra í Brussel í morgun, samkvæmt frásögn AFP fréttastofunnar.
„Þetta er raunsætt mat, og ég bið ykkur að finna til þennan stuðning,“ sagði Zelensky.
Forseti Úkraínu kom á fund leiðtoganna í morgun, í kjölfar versnandi samskipta sinna við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Trump gerði um síðustu helgi samkomulag við Vladimir Pútín Rússlandsforseta um aukið framboð á olíu og dísel olíu frá Rússlandi; samkomulag sem Zelensky, og aðrir evrópskir leiðtogar hafa gagnrýnt harðlega.
Á fjölsóttum blaðamannafundi um hádegisbil var Zelensky meðal annars spurður hvaða viðbrögð gagnrýni hans á Trump hefði vakið í hópi evrópsku leiðtoganna
„Ég heyrði aðeins stuðningsorð frá evrópskum kollegum mínum og ég er þakklátur fyrir það.“
Hann ræddi ennfremur um að ákveðin takmörk hefðu verið sett á notkun Úkraínumanna á notkun Starlink gervihnattakerfisins, sem þeir hafa meðal annars notað til að skjóta niður hraðskreiða árásardróna Rússa.
„Við fáum ekki að nota þetta til að vernda almenna borgara,“ sagði Zelensky, en tók svo fram að hann hefði fengið skilaboð um að þessum takmörkunum yrði aflétt.
„Þetta er mitt svar“
Zelensky var á blaðamannafundinum ítrekað spurður um samband hans við Donald Trump sem virðist fara versnandi með degi hverjum. Hann vék sér undan að svara framan af, en brást svo við undir lok fundarins, þegar fréttamaður frá Sky-sjónvarpsstöðinni spurði Zelensky beint hvort Trump væri að nota hann sem blóraböggul fyrir sín eigin pólitísku vandræði. Zelensky meðtók spurninguna - þagði í drykklanga stund, og sagði svo:
„Þetta er mitt svar.“