Ísland kemur einna best út úr COVID-faraldrinum
Yfirlæknir á sýkla- og veirufræðadeild Landspítalans segir gögn sýna að Ísland kom einna best út úr COVID-faraldrinum. Annarskonar áskoranir hafa þó fylgt faraldrinum, svo sem Long-COVID og vantraust til bólusetninga.
„Helsti styrkur íslensku leiðarinnar var samspil góðrar þekkingar á stöðu faraldursins, öflugrar sérfræðiráðgjafar og góðs trausts,“ segir Karl G. Kristinsson, prófessor emeritus og yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Hann gerir tilraun til þess að greina gengi Íslendinga í COVID-faraldrinum í grein sem hann birti í Morgunblaðinu í dag þar sem hann ber saman alþjóðleg gögn OECD, niðurstöður í talnagrunni Oxford-háskólans um samgöngutakmarkanir og tölfræði OWID (Our World in Data) sem snýr að bólusetningarþátttöku íslensku þjóðarinnar.
Þessi gögn sýna dánartíðni, aðgerðir og bólusetningar í 15 löndum á árunum 2020 til 2022. Í stuttu máli kom Ísland sterkt út úr samanburðinum og dánartíðnin næst lægst á meðal samanburðarríkja. En afleiðingar faraldursins eru slungnar og birtast meðal annars með vaxandi vantrausti gagnvart bólusetningum og illa rannsökuðum krónískum veikindum eins og „Long-COVID“.
Dánartíðni næstminnst innan OECD
Í grein sinni skrifar Karl: „Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) hefur tekið saman dánartölur og leiðrétt þær fyrir …