Greint var frá því í gær að Berglind Alda Ástþórsdóttir, leikkona og þáttastjórnandi, og Auðunn Blöndal, sjónvarpsmaður, leikari og veitingamaður, yrðu einnig í hópi keppenda, en hulunni verður svipt af fimmta og síðasta keppandanum hér á Vísi á morgun.
Saga Garðarsdóttir er ein af eftirsóttustu leikkonum og uppistöndurum þjóðarinnar. Hún kom fyrst fram á sjónarsviðið í Steindanum okkar og hefur síðan leikið í sjónvarpsþáttum á borð við Aftureldingu, Steypustöðina og Stellu Blómkvist. Hún hlaut Edduverðlaun sem leikkona ársins í aðalhlutverki árið 2026 fyrir kvikmyndina Ástina sem eftir er.
Jón Jónsson hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar. Síðustu ár hefur hann gert allt vitlaust ásamt fóstbræðrum sínum í IceGuys, en hann hefur einnig getið sér gott orð sem sjónvarpsmaður og skemmtikraftur. Hann hefur meðal annars verið dómari í Ísland Got Talent og stýrt Fjörskyldunni, auk þess að hafa haslað sér völl sem uppistandari.
Tökur á nýrri þáttaröð hófust fyrr í þessum mánuði, en Ari Eldjárn og Jóhann Alfreð Kristjánsson munu þar snúa aftur sem stjórnendur þáttanna. Hægt er að horfa á fyrstu þáttaröðina á streymisveitunni Sýn+ og í opinni dagskrá á Sýn.
Í Taskmaster Ísland mæta fimm íslenskir skemmtikraftar og grínistar til leiks og keppa í óvæntum og oft furðulegum þrautum sem krefjast útsjónarsemi, hugmyndaauðgi og húmors. Allt er þetta gert í nafni heiðurs og hláturs en einnig til að finna út hver verður hinn eini sanni þrautakóngur þáttaraðarinnar.