Landsbjörg og ríkisstjórnin skrifuðu undir viljayfirlýsingu um að ljúka smíði 16 björgunarskipa á næstu árum. Undirritunin átti sér stað við opnun ráðstefnunnar Björgun 26 sem haldin er í Hörpu um helgina.
Ríkið hefur stutt við verkefnið fram til þessa með 50% framlagi í hvert skip. Fyrir lá viljayfirlýsing um aðkomu ríkisins að tíu skipum og með undirrituninni í morgun tryggir ríkið aðkomu sína að síðustu þremur björgunarskipunum.
„Við sjáum nú loks til lands í því risastóra verkefni,“ segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Hann segir endurnýjun skipaflotans stærsta verkefni sem frjáls félagasamtök hafi farið af stað með.
Átta skip eru þegar komin til landsins og segir Jón Þór að þau hafi þegar sannað gildi sitt.
„Það er nauðsynlegt að klára þetta verkefni og það er því mjög ánægjulegt að við höfum náð að skrifa undir þetta samkomulag við ríkið um að það komi að þessum síðustu þremur eins og það hefur gert myndarlega að fyrstu tíu skipunum,“ segir Jón Þór.
Það voru þau Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður Landsbjargar og Kristján Þór Harðarson framkvæmdastjóri félagsins sem skrifuðu undir viljayfirlýsinguna ásamt Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra og Hönnu Kristínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Að lokinni setningarathöfninni rituðu svo Borghildur Fjóla og Hermann Björnsson forstjóri Sjóvá undir nýjan styrktarsamning Sjóvár við félagið. Sjóvá hefur staðið að þróun Safe Travel smáforritsins og gjöfum á öryggisgleraugum fyrir börn um áramót en leggur einnig til 142 milljónir króna í beinu framlagi til félagsins.
Ráðstefnan Björgun 26 fer fram dagana 16. til 18. október í Hörpu og segir Jón Þór fjölmargt í boði þar. Um 60 fyrirlestrar verði haldnir sem höfði til allra viðbragðsaðila. „Ekki bara félaga í björgunarsveitunum, heldur ekki síður lögreglumanna, slökkviliðsmanna og til dæmis sjálfboðaliða Rauða krossins og fleiri,“ segir hann.