Þetta kemur fram í tölvupósti sem aðgerðastjórn Íslandsbanka sendi starfsfólki í dag. Aðgerðarstjórn bankans hefur verið virkjuð vegna málsins og mun fylgjast áfram með þróun mála í samstarfi við lögreglu.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér, nafnlaust eða undir nafni. Fullum trúnaði er heitið.
„Lögreglan hefur metið aðstæður og telur hótunina ótrúverðuga og hættuna ekki raunverulega. Lögregla sér ekki ástæðu til að rýma bankann og starfsemi heldur áfram með eðlilegum hætti,“ segir í póstinum.
Þá er tekið fram að mikill skilningur sé meðal aðgerðarstjórnar að fréttir sem þessar geti valdið óþægindum. Starfsfólki er boðið að klára daginn heima. Starfsfólki er þakkað fyrir skilninginn og yfirvegun.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér, nafnlaust eða undir nafni. Fullum trúnaði er heitið.