Þetta kemur fram í umsögn Icelandair til fjárlaganefndar Alþingis. Félagið segir fjárlagafrumvarp næsta árs ekki mæta aukinni mannaflaþörf við landamæraeftirlitið.
Biðraðirnar hafi kostað Icelandair endurbækur og hótelgistingu fyrir farþega sem misstu af tengiflugi. Þá hafi vélum verið seinkað til að bíða eftir farþegum, með keðjuverkandi töfum í leiðakerfinu.
„Kerfið gengur aðeins upp ef farþegar komast hratt og örugglega milli véla,“ segir í umsögninni.
Bogi bendir á að tengifarþegar geri Icelandair kleift að halda úti fleiri flugleiðum og ferðum en íslenski markaðurinn og ferðamenn á leið hingað stæðu einir undir. Slæm reynsla geti fælt farþega frá því að velja tengingu um Ísland aftur.
Í umsögn Margrétar Kristínar Pálsdóttur, lögreglustjóra á Suðurnesjum, er fjárþörf vegna viðbótarmönnunar metin á 696,9 milljónir króna á ári.
Núverandi fjárheimildir geri ráð fyrir um 40 landamæravörðum. Bæta þurfi við 30 stöðugildum yfir veturinn og 40–60 yfir sumarið. Lögreglustjórinn varar við því að án aukins fjármagns verði ekki hægt að tryggja skilvirkt eftirlit eftir innleiðingu nýja komu- og brottfararkerfis Schengen-ríkjanna.
Í umsögn hennar kemur jafnframt fram að sjálfsafgreiðslustöðvar séu ekki komnar í fulla virkni, hugbúnaður sé ekki fullbúinn og ekki hafi tekist að fylla allar stöður þrátt fyrir tímabundið aukið fjármagn.
Icelandair styður fjárbeiðnina og segir ákvörðun þurfa að liggja fyrir við afgreiðslu fjárlaga í haust. Ráðning og þjálfun taki mánuði og óbreytt mönnun dugi ekki næsta sumar, að mati félagsins.