Ljósleiðari Mílu slitnaði milli Akraness og Lambhaga í morgun. Bilunin hafði áhrif á farsímasamband við Svínadal, Lambhaga og Grundartanga og nettengingar í nágrenni við Lambhaga.
Viðgerð lauk þegar klukkuna vantaði 20 mínútur í tvö.
Fréttin hefur verið uppfærð.