Með nýjum notendaskilmálum Meta áskilur fyrirtækið sér rétt til þess að skrapa vefi sem tengdir eru fyrirtækjareikningum.
Með því að hafa fyrirtækjareikning hjá Meta veita fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar samfélagsmiðlarisanum aðgang að efni á vefjum sínum.
Þessir nýju notendaskilmálar gildi á miðlum Meta 30. október. Á sama tíma tekur nýtt áskriftarmódel Meta gildi – sem notendur síðna verða að kaupa sér til að geta dreift fleiri en tveimur hlekkjum frítt á mánuði.
Fyrirtækjareikningarnir gera fyrirtækjum og opinberum persónum kleift að stýra Facebook-síðum, spjallþráðum í Messenger, Instagram-reikningum og WhatsApp-þráðum á einum stað.
Líklegt er að öll stórtæk fyrirtæki á samfélagsmiðlum séu með fyrirtækjareikning. Eins og nýju skilmálarnir eru orðaðir þá getur Meta fært rök fyrir því að fyrirtækið geti skrapað efni frá vefsíðum fyrirtækja – þar með talið fjölmiðla – og notað til þess að þjálfa gervigreindartól.
Vertu með eða hættu á Facebook
Það eru óvenjulegar ráðstafanir að grafa þessar heimildir í nýjum notendaskilmálum, er haft eftir Matt Topic, bandarískum lögfræðingi og sérfræðingi í fjölmiðla- og höfundarétti.
Höfundarréttarvarið efni nýtur verndar samkvæmt íslenskum höfundalögum um leið og það verður til. Svipaðar reglur gilda um hugverk víðast hvar í heiminum. Efni á borð við fréttir, ljósmyndir, kvikmyndir, myndlist, tónlist, ritverk, leikrit og jafnvel teikningar og uppdrættir njóta alla jafna höfundaréttar.
Höfundar efnis njóta bæði fjárhagslegra réttinda og sæmdarréttar í íslenskum lögum. Vegna sæmdarréttarins þurfa allir sem birta höfundarverkið að eigna það höfundinum. Höfundurinn ræður því líka hvenær birting efnisins fer fram og getur bannað öðrum að nota efnið. Fjárhagslegu réttindin tryggja að höfundurinn fái greitt fyrir notkun verkanna.
Talið er að Meta reyni að spara sér milljónir bandaríkjadala í höfundarréttargreiðslur með breytingu á skilmálunum.
Meta tilkynnti notendum Meta Business Suite um breytingarnar í bloggfærslu á vef fyrirtækisins í byrjun október. Þar er sérstaklega tekið fram að Meta geti notað efni sem það safnar frá tengdum vefsíðum til þess að þjálfa gervigreindarvörur fyrirtækisins.
Notendum eru ekki gefnar neinar leiðir til þess að mótmæla eða hafna þessum uppfærðu skilmálum. Uppfærðir skilmálar tilgreina raunar sérstaklega að aðeins eitt sé í stöðunni ef notandi getur ekki gengið að skilmálunum: Hættu að nota fyrirtækja- og auglýsingavörur Meta.
Svara ekki spurningum
Bandaríski sérmiðillinn NiemanLab.org fjallar sérstaklega um fjölmiðla og umhverfi þeirra. Þaðan bárust spurningar til Meta um skilmálabreytingarnar en fá svör bárust.
Almannatenglafulltrúi Meta segir skilmála um skröpun vefsíða hafa verið á víð og dreif í notendaskilmálum fyrirtækisins. Breytingar nú dragi þessa skilmála saman og lýsi þeim á einum og sama staðnum.
Í víðasta skilningi áskilur Meta sér rétt til þess að safna öllu efni viðskiptavina sinna, hvort sem það birtist á miðlum Meta eða ekki, og dreifa því svo beint eða með gervigreind, er haft eftir James Grimmelmann, prófessor í upplýsingarétti við Cornell-háskóla, í frétt NiemanLab.
Nýir skilmálar fjalla jafnframt um að Meta fái að búa til gervinotendur á vefjum viðskiptavina sinna til þess að komast í efni sem er bak við greiðsluveggi.
Stór fjölmiðlafyrirtæki í Bandaríkjunum og Evrópu reka nú mál gegn gervigreindarfyrirtækjum vegna meintra brota á höfundarétti. Fjölmiðlar saka fyrirtækin – þeirra á meðal Meta – um að hafa notað milljónir frétta, greina og annað höfundaréttarvarið efni til þess að þjálfa mállíkönin sín.
Svo virðist sem Meta reyni með þessum breytingum á skilmálum að komast fram hjá reglum um höfundaréttarvarið efni.
Gervigreindarfyrirtækin í Bandaríkjunum hafa sum samið um háar greiðslur vegna brota á höfundarétti. Anthropic, sem rekur Claude-spjallmennið, greiddi til dæmis hópi rithöfunda 1,5 milljarða bandaríkjadala fyrr á þessu ári til að sleppa við réttarhöld.