Maður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir alls 88 þjófnaði og eina þjófnaðartilraun. Stal maðurinn ýmis konar vörum en þó einna oftast kjúklingabringum.Þjófnaðirnir voru framdir á tímabilinu desember 2024 til júlí 2026.Maðurinn stal aðallega matvörum til dæmis orkudrykkjum, samlokum og gosi þó einna helst kjúklingabringum en hann stal einnig álpappír, raftækjum, fatnaði, verkfærum, húðvörum, ilmvötnum, lego-leikföngum og fæðubótarefnum.
Stal 88 sinnum úr verslunum og sundlaug - Sótti mikið í kjúklingabringur