Tilvikum þar sem heilbrigðisstarfsmaður er beðinn að staðfesta fæðingu sem hann var ekki viðstaddur fer fjölgandi og vitað er um að minnsta kosti 23 tilvik þar sem konur fæddu barn án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns á árunum 2022 til 2025. Barnalög gera ekki ráð fyrir þessum möguleika og skortur á skýru verklagi kemur í veg fyrir að hægt sé að tryggja réttmæta skráningu barnanna í þjóðskrá.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um fæðingar án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks.
Í skýrslunni segir að ástæður þess að konur standi utan heilbrigðisþjónustu við fæðingu geti verið margvíslegar. Sumar kjósi það sjálfar en aðrar kunni að búa við ofbeldi, mansal eða aðrar hindranir.
Starfshópurinn segir margar hliðar á meðvitaðri sniðgöngu á heilbrigðisþjónustu í barneignarferli, svo sem réttur einstaklings til að afþakka heilbrigðisþjónustu, réttur nýfædds barns til heilbrigðisþjónustu og réttur barns til að vita uppruna sinn og til réttrar skráningar í opinberum gögnum.
Meðal aðgerða sem starfshópurinn leggur til er að verklag við vottun fæðinga án aðkomu heilbrigðisstarfsmanns verði samræmt, að mæðrum verði gert að framvísa gildum persónuskilríkum persónulega að minnsta kosti einu sinni á meðgöngu eða við fæðingu, að upplýsingagjöf til foreldra um mikilvægi þess að sækja heilbrigðisþjónustu innan 48 klukkustunda frá fæðingu verði efld, og öllum börn sem fæðast utan heilbrigðiskerfisins verði tryggður aðgangur að viðunandi heilbrigðisþjónustu.