Kvikmyndaverið DC Studios greindi frá því í síðustu viku að hlé hefði verið gert á tökum The Batman: Part II vegna „persónulegs fjölskyldumáls“ hjá Matt Reeves, leikstjóra og handritshöfundi myndarinnar. Ekki kom fram hvenær þær myndu byrja á ný.
Í gær var svo greint frá því að hinn reyndi Steven Soderbergh, sem hefur leikstýrt myndum á borð við Black Bag (2025), Magic Mike (2012) og Ocean’s 11 (2001), myndi taka við leikstjórnarkeflinu og klára síðustu sex vikurnar af tökum.
Kvikmyndaverið og leikstjórarnir tveir sendu öll frá sér yfirlýsingu vegna málsins, væntanlega til að koma í veg fyrir getgátur fólks um hvað lægi að baki ákvörðuninni.
„Á meðan Matt Reeves glímir við áframhaldandi fjölskyldumál ákvað Steven Soderbergh, sem mikill aðdáandi verka Matts, að koma að máli við Matt og stíga inn, með fullum stuðningi DC Studios, til að hjálpa leikstjóranum og handritshöfundinum að klára síðustu vikurnar af tökum á The Batman: Part II. Matt og Steven munu vinna náið saman með leikurum og tökuliði við að uppfylla sýn Matts,“ sagði í tilkynningu frá kvikmyndaverinu.
Soderbergh sagði sömuleiðis að ætlun sín væri að ljúka við verk Reeves en ekki koma í hans stað.
„Mér fannst vinna Matts Reeves í The Batman vera áhrifamikil, hún var hnitmiðuð, nákvæm og ákaflega samfelld. Markmiðið hér er að vinna með Matt og teyminu hans við að búa til myndefni sem mun passa hnökralaust við það sem hefur þegar verið skotið svo Matt geti klárað myndina almennilega,“ sagði Soderbergh.
Þá ítrekaði Reeves að hann myndi ekki yfirgefa verkefnið.
„Bara svo það sé skýrt þá er ég ekki að yfirgefa The Batman: Part II. Ég er innilega þakklátur Steven fyrir að hjálpa mér á þessum erfiðu tímum til að hjálpa mér að klára tökurnar. Þakka ykkur öllum fyrir umhyggjuna og kveðjurnar,“ sagði Reeves.
Samkvæmt bransamiðlum vestanhafs er búið að taka upp tvo þriðju af kvikmyndinni og um sex til sjö vikur eftir af tökum. Ekki liggur þó fyrir hvernig eftirvinnslu myndarinnar verður háttað og kemur fram að Reeves muni veita ráðgjöf við framleiðsluna og snúa aftur þegar hann getur. Ekkert liggur fyrir um hvað hann er að eiga við en aðstæðurnar virðast greinilega alvarlegar.
Framhaldið átti fyrst að koma út í október 2025 en var seinkað um ár til októbers 2026 áður en henni var seinkað um annað ár og svo um sex mánuði til viðbótar til febrúars 2028. Lítið hefur komið fram um innihald myndarinnar eða umfjöllunarefni og nánast ekkert kynningarefni birst um hana.
Það eina sem hefur komið fram um myndina er að Robert Pattinson, Andy Serkis, Colin Farrell og Jeffrey Wright muni snúa aftur í hlutverkum sínum og að Scarlett Johansson og Sebastian Stan bætist við leikhópinn. Þá hefur komið fram að sá síðastnefndi muni fara með hlutverk Harvey Dent sem umbreytist í ófétið Two-Face.