Á vef Veðurstofunnar má sjá að á höfuðborgarsvæðinu verði viðvörun í gildi milli 15 og 20 á morgun. Á vestanverðu landinu tekur gul viðvörðun gildi klukkan 11 en milli 16 og 20 á morgun verður appelsínugul viðvörun í gildi á Breiðafjarðarsvæðinu. Þar er spáð suðaustan og sunnan 18 til 28 m/s, hvassast á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geta farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki.
Gul viðvörun verður í gildi á landinu öllu seinni partinn á sunnudaginn þar sem útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag, ásamt því sem voldug hæð situr yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri Skandinavíu. Viðvörunin tekur gildi klukkan 15 á sunnudag og verður í gildi til klukkan 1, aðfararnótt mánudags.
Á vef Veðurstofunnar segir að það sé því útlit fyrir að hvessi á öllu landinu og víða megi búast við sunnan og síðar suðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindhraði á bilinu 15-25 m/s).
Líkur eru á mjög snörpum vindhviðum við fjöll, sem geta verið varasamar fyrir ökutæki. Lausamunir geta fokið. Einnig er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands.
Viðvaranir Veðurstofunnar:
Höfuðborgarsvæðið
- Sunnan hvassviðri (Gult ástand)
- 17. okt. kl. 15:00 – 20:00
- Suðaustan og sunnan 13-20 m/s, hvassast í efri byggðum. Búast má við snörpum vindhviðum við háhýsi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu, talsverð úrkoma um tíma.
Faxaflói
- Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
- 17. okt. kl. 14:00 – 21:00
- Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu, talsverð úrkoma um tíma.
Breiðafjörður
- Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
- 17. okt. kl. 11:00 – 16:00
- Suðaustan og sunnan 15-23 m/s, hvassast á Snæfellsnesi. Þar geta vindhviður farið yfir 30 m/s, sem er varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu.
- Sunnan stormur eða rok (Appelsínugult ástand)
- 17. okt. kl. 16:00 – 20:00
- Suðaustan og sunnan 18-28 m/s, hvassast á Snæfellsnesi þar sem vindhviður geta farið yfir 40 m/s, sem er hættulegt fyrir ökutæki. Lausamunir fjúka líklega og möguleiki á staðbundnu foktjóni. Búast má við talsverðri rigningu.
- Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
- 17. okt. kl. 20:00 – 18 okt. kl. 00:00
- Sunnan 15-23 m/s, hvassast á Snæfellsnesi. Þar geta vindhviður farið yfir 30 m/s, sem er varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu.
Vestfirðir
- Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
- 17. okt. kl. 13:00 – 18. okt. kl. 00:00
- Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við talsverðri rigningu.
Strandir og Norðurland vestra
- Sunnan hvassviðri eða stormur (Gult ástand)
- 17. okt. kl. 16:00 – 18 okt. kl. 00:00
- Suðaustan og sunnan 15-23 m/s. Vindhviður geta farið yfir 30 m/s við fjöll, sem getur verið varasamt fyrir ökutæki, sér í lagi þau sem eru viðkvæm fyrir vindi. Lausamunir geta fokið. Búast má við rigningu.
Miðhálendið
- Sunnan stormur (Gult ástand)
- 17. okt. kl. 12:00 – 18. okt. kl. 03:00
- Suðaustan og sunnan 18-28 m/s, hvassast norðan undir jöklum og mjög snarpar vindhviður. Varasamt ferðaveður. Búast má við rigningu, talsverð sunnatil.
Allt Ísland
- Sunnan og suðvestan stormur (Gult ástand)
- 18. okt. kl. 15:00 – 19. okt. kl. 01:00
- Útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag, ásamt því sem voldug hæð situr yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri Skandinavíu. Það er því útlit fyrir að hvessi á öllu landinu og víða má búast við sunnan og síðar suðvestan hvassviðri eða stormi (meðalvindhraði á bilinu 15-25 m/s). Líkur eru á mjög snörpum vindhviðum við fjöll, sem geta verið varasamar fyrir ökutæki. Lausamunir geta fokið. Einnig er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands.