Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að senda fjórum konum myndefni af getnaðarlim sínum í gegnum einkaskilaboð á samfélagsmiðlum á árinu 2024.Ákært er fyrir brot gegn blygðunarsemi en héraðssaksóknari er ákærandi. Manninum er gefið að sök að hafa sent konu í gegnum Facebook mynd af getnaðarlimnum um mitt sumar það ár, og síðan, seint í nóvember, sent henni 14 sekúndna myndband með sama myndefni.
Ákærður fyrir að senda fjórum konum typpamyndir