STEF, hagsmunasamtök tón- og textahöfunda á Íslandi hafa í framhaldi af frétt DV, um gleraugnaverslun sem fékk á sig kröfu fyrir notkun á höfundarréttarvarðri tónlist, sent frá sér yfirlýsingu. Segir í yfirlýsingunni að málið virðist angi af stærra vandamáli sem lýsi sér þannig að með aukinni netvæðingu sé litið svo á að höfundaverk annarra svo sem tónlist og kvikmyndir séu eins konar vatnskrani sem hægt sé að nota að vild og án þess að nokkurt leyfi sé veitt til slíks, hvað þá að greitt sé fyrir.
Segja mál gleraugnaverslunarinnar anga af stærra vandamáli - Litið sé á höfundaverk eins og kranavatn