„Viðreisn hefur haft hátt um að hagræða hjá ríkinu en svo gefst dauðafæri og þá er ekkert gert,“ segir Diljá við fréttastofu.
Hún vísar þar til skriflegs svars Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurn hennar um áhrif breytinganna á verkefni og starfsmannafjölda Jafnréttisstofu. Svarið var lagt fram á Alþingi í gær og þar kemur fram að starfsmannafjöldinn hafi haldist óbreyttur frá gildistöku breytinganna 1. september.
„Færri fyrirtæki þurfa nú að skila gögnum, skilin eru sjaldnar og ferlið á að vera sjálfvirkara. Samt fækkar ekki um eitt stöðugildi,“ segir Diljá.
Hún segist fagna afnámi jafnlaunavottunarinnar en telur að breytingunni hefði átt að fylgja hagræðing hjá stofnuninni.
„Ég hef lengi barist gegn þessari íþyngjandi skyldu og fagna afnáminu. En til hvers er verið að einfalda regluverkið ef ríkisbáknið stendur óhaggað?“
Hluti vinnunnar færist til Jafnréttisstofu
Í svari ráðherra er óbreyttur starfsmannafjöldi settur í samhengi við breytt verkefni stofnunarinnar. Vinna sem áður var unnin hjá vottunaraðilum færist að einhverju leyti til Jafnréttisstofu í gegnum nýtt rafrænt þjónustu- og gagnakerfi sem stofnunin hefur alfarið umsjón með.
Þar segir að áhersla sé lögð á að gera móttöku og yfirferð gagna eins rafræna og sjálfvirka og kostur sé.
Þannig eigi að tryggja skilvirkt verklag og halda kostnaði í lágmarki.
Jafnréttisstofa annast áfram eftirlit með gagnaskilum, ráðgjöf, leiðbeiningar og fræðslu. Áður annaðist hún einnig jafnlaunastaðfestingu fyrir minni fyrirtæki á almennum markaði með 25 til 49 starfsmenn, sem gátu valið þá leið í stað jafnlaunavottunar. Í svarinu er vísað til starfsmannafjölda en stöðugildi ekki tilgreind.
Segir nýja kerfið jafnvel flóknara
Diljá og Þorbjörg ræddu jafnframt framkvæmd nýja kerfisins í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær. Þar sagðist Diljá hafa fengið kvartanir um að einföldunin hefði ekki skilað sér til fyrirtækja og stofnana.
„Við þingmenn höfum fengið þó nokkrar ábendingar, bæði frá atvinnulífinu og frá hinu opinbera, um að nýja kerfið sem var lögfest sé jafnvel flóknara en gamla jafnlaunavottunarkerfið, bæði tímafrekara og líka hvað varðar umsýslu,“ sagði hún.
Diljá sagði vandkvæðin meðal annars snúast um að atvinnurekendur þyrftu að laga sig að einsleitara ríkiskerfi. Samkvæmt ábendingunum nýttist fyrri vinna ekki og fyrirtæki og stofnanir stæðu frammi fyrir umtalsverðum kostnaði við að endurmeta störf á mjög skömmum tíma.
Hún rifjaði upp að Sjálfstæðisflokkurinn hefði stutt afnám jafnlaunavottunar en viljað ganga lengra og gera skýrslugjöfina valkvæða. Sú breytingartillaga hefði verið felld.
Diljá spurði hvort sjónarmið eftirlitsaðila hefðu ráðið för við hönnun kerfisins til að einfalda þeim yfirferðina. Hún kallaði fyrirkomulagið tilraunastarfsemi og spurði hvort ráðherra ætlaði að hlusta á umkvartanirnar og bregðast við.
Ráðherra hafnar gagnrýninni
Þorbjörg sagði ríkisstjórnina hafa hlustað á gagnrýni á gamla kerfið og brugðist við með einfaldara og ódýrara fyrirkomulagi.
Hún benti á að stærðarmörkin hefðu verið hækkuð úr 25 starfsmönnum í 50 og skilaskyldum aðilum hefði samkvæmt því fækkað úr um 1.300 í um 660. Gögnunum þyrfti að skila á þriggja ára fresti.
Ráðherra hafnaði því að fyrri vinna við flokkun starfa nýttist ekki. Fyrirtækin þyrftu að skila gögnum í nýtt rafrænt kerfi en ferlið yrði sjálfvirkt eftir að þau hefðu farið í gegnum það í fyrsta sinn.
„Við erum að leitast við að ná fram tveimur jafn mikilvægum markmiðum; einfaldara kerfi og ódýrara kerfi fyrir atvinnulífið,“ sagði Þorbjörg og áréttaði að hún myndi ekki hvika frá markmiðinu um að verja launajafnrétti.
Í síðara svari sínu sagði ráðherra kerfið vera „kostnaðarlaust í framkvæmd fyrir atvinnulífið“. Hún hafnaði því að um nýja kvöð væri að ræða þegar verið væri að einfalda fyrirkomulagið.
„Það er ekki ný kvöð þegar við mætum gagnrýni, þegar við leggjum við hlustir, þegar við einföldum kerfið, en við ætlum ekki að bakka með það markmið að halda í aðgerðir til að tryggja launajafnrétti kynjanna. Svo einfalt er það.“