Johannes Natland var átján ára ára gamall þegar hann var tekinn fastur á hóteli í Huddersfield í Vestur-Jórvíkurskíri á Englandi í mars í fyrra. Á herbergi hans fundust tvær byssur auk skotfæra. Hann játaði á sig vörslu á skotvopnunum.
Natland var fundinn sekur af ákæru um að hafa lagt á ráðin um morð í sumar. Í dag var honum gerð tuttugu ára fangelsisrefsing, að sögn breska ríkisútvarpsins. Hann þarf að afplána að minnsta kosti þrettán ár af henni.
Saksóknarar sögðu að Foxtrot, alræmd sænsk glæpasamtök með tengsl við írönsk stjórnvöld, hefðu gert Natland út af örkinni. Fyrir það hefði hann átt að fá 270 þúsund norskar krónur, jafnvirði tæpra þriggja og hálfrar milljónar íslenskra króna.
Þeir gátu þó ekki tilgreint hvern Norðmaðurinn hefði verið fenginn til þess að ráða af dögum. Natland fékk leiðbeiningar um hvert hann ætti að fara í gegnum myndbönd á samskiptamiðlinum Signal. Byssur, stolinn bíll og reiðufél beið hans þar.
Upp komst um launráðin þegar norska lögreglan handtók ungling sem hafði fengið Natland til verksins. Samskipti um leigumorðið í Bretlandi fundust á síma hans. Enska lögreglan náði svo að hafa hendur í hári Natland áður en hann náði skotmarki sínu.
Natland er frá Stavangri í Suðvestur-Noregi. Hann er sagður hafa leiðst út í fíkniefnaneyslu þegar hann var unglingur og flosnað upp úr námi. Verjandi hans bar því við að hann væri andlega veikur af völdum neyslunnar.
Sænsk glæpasamtök eru þekkt fyrir að fá unglinga til þess að vinna skítverk fyrir sig, þar á meðal að fremja morð og skemmdarverk, í gegnum samfélagsmiðla.