Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur óskað eftir frekara samráði við fulltrúa minnihluta á Alþingi um byggðahluta fiskveiðistjórnunarkerfisins. Hann biður um beinar tillögur frá stjórnarandstöðunni.
Nokkuð ósætti hefur verið á Alþingi um málið og telja formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar að innviðaráðherra hafi grafið undan trausti þegar línuívilnun og rækju- og skelbætur voru skornar niður í september. Útgerðir sem orðið hafa fyrir skerðingu vegna breytinganna hafa sagst uggandi yfir 50% lækkun frá síðasta ári.
Í reglugerð sem innviðaráðherra gaf út í september nemur lækkun aflamarks til byggðakerfisins alls 5,8%.
Línuívilnun hefur fram að fiskveiðiárinu 2018/19 nær alltaf miðað við 3375 tonn af þorski. Á fiskveiðiárinu 2018/19 var hún lækkuð í 3000 tonn og svo í 2000 tonn árið eftir. Hún hefur svo farið lækkandi og í nýjustu reglugerð frá því í fyrra er gert ráð fyrir 300 tönnum. Skel- og rækjubætur eru þar 182 tonn. Lengst af voru þær í kringum 1000 tonn.
Forsvarsmenn fyrirtækja sem eiga takmarkaðan eignarkvóta segjast finna verulega fyrir lækkuninni en starfsemi þeirra byggist að miklu leyti á almennum byggðakvóta, sértækum byggðakvóta og línuívilnun.
Eyjólfur segir að samráðsfundur hafi farið fram í vikunni með fulltrúum stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðunnar. „Sá fundur gekk alveg prýðilega,“ segir Eyjólfur sem er bjartsýnn á að hægt sé að vinna saman að verkefninu þrátt fyrir ósætti innan þingsins.
„Orðalag samkomulagsins er alveg skýrt. Það felst í því að við myndum hafa samráð við stjórnarandstöðuna, einn fulltrúi stjórnarandstöðu og annar frá stjórnarmeirihlutanum í samráði varðandi frumvarpsvinnu við frumvarp til laga um Byggðakerfið,“ segir Eyjólfur sem telur að samstaða sé um markmiðin.
„Það er það að 5,3% kerfið og byggðakerfið stuðli að stuðningi við þær byggðir sem hafa farið illa út úr núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi, smærri byggðir sem hafa misst aflaheimildir,“ segir Eyjólfur.