Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar forsvarsmanns ónefndrar bílasölu yfir starfsháttum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Sakaði bílasalinn embættið og raunar tiltekinn lögreglumann um einelti með því að sekta ítrekað vegna bifreiða sem lagt hefði verið á lóð fyrirtækisins og tiltekinnar bifreiðar sem lagt hefði verið á landi Reykjavíkurborgar, með leyfi frá borginni.
Bílasali sakaði lögregluna um einelti - „Abbast upp á friðsaman og löghlýðinn borgara“