Bandarísk fjölmiðlakona var barin við störf á Vesturbakkanum í Palestínu í dag. Grímuklæddir menn réðust að henni vopnaðir prikum.
Heidi Levine var að mynda fyrir bandaríska miðilinn Washington Post í umfjöllun um ofbeldi landtökufólks gegn palestínskum ólífubændum. Hún ræddi við fréttamenn úr sjúkrarúmi í Ramallah og segir fleiri en fimmtíu grímuklædda landtökumenn hafa ráðist á sig vopnaða prikum.
Var merkt í bak og fyrir
Levine segist hafa legið á jörðinni á meðan höggin dundu á henni í um tíu mínútur og hún hafi reynt að halda í myndavélina og töskuna sína. Washington Post segir Levine hafa verið í merktu vesti, bæði að framan og aftan.
Samtök erlendra blaðamanna greina frá því að árásarmennirnir hafi stolið vegabréfi, síma og búnaði frá Levine.
Samtökin segja árásina eina af mörgum á blaðamenn og almenna borgara á Vesturbakkanum og að ísraelsk stjórnvöld hafi hunsað ítrekaðar kröfur þeirra um að aðgerðir.
Ísraelar hernámu hluta Vesturbakkans 1967 og hafa síðan hertekið sífellt meira land í trássi við alþjóðalög. Meirihluti íbúa er Palestínumenn. Þar búa líka þúsundir Ísraela, sem hafa sölsað undir sig land Palestínumanna og eru ýmist kallaðir landtökumenn eða landránsmenn.
Allar landtökubyggðir á hernumdum Vesturbakkanum brjóta í bága við alþjóðalög og þá gildir einu hvort þær hafi fengið samþykki yfirvalda í Ísrael.