Sprengjuhótanir voru sendar á nokkrar ríkisstofnanir og fyrirtæki í vikunni en lögreglan telur ekki þörf á að bregðast við þeim. RÚV greinir frá því að forsætisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið hafi fengið slíkar hótanir í tölvupósti, mun pósturinn hafa verið skrifaður á ensku.
Stofnanir og fyrirtæki fengu sprengjuhótanir