Kínversk-íslensk norðurljósa-rannsóknarstöð í Þingeyjarsveit, hefur verið rædd í Þjóðaröryggisráði. Í svari við fyrirspurn frá fréttastofu segjast íslensk stjórnvöld hafa fullt aðgengi að tækjum og gögnum stöðvarinnar.
Evrópskar öryggisstofnanir, þar á meðal á Norðurlöndunum, hafa bent á að kínverskar leyniþjónustur beiti fjölbreyttum aðferðum við ólöglega upplýsingaöflun. Þetta er meðal þess sem segir í svari forsætisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu um rannsóknir á Kárhóli í Þingeyjarsveit.
Nýverið var því fagnað að byggingu kínversk-íslensku norðurljósa-rannsóknarstöðvarinnar væri að mestu lokið og stöðin loks farin að taka á móti vísindamönnum víða að. Fyrsta skóflustungan var tekin fyrir tólf árum og gengið hafði á ýmsu við fjármögnun. Heimskautastofnun Kína tók á sig allan kostnað - milljarð íslenskra króna.
Stöðin, sem heitir Arctic Observatory, er samstarfsverkefni íslenskra og kínverskra vísindastofnana. Sjálfseignarstofnun stöðvarinnar leigir hana til kínversku heimskautastofnunarinnar - sá samningur hljóðar upp á 99 ár.
Rannsóknir þekkt yfirskin við njósnir
Í umfjöllun íslenskra fjölmiðla undanfarin ár hafa ýmsir lýst áhyggjum af því að þarna gæti upplýsingum verið safnað um fleira en náttúruna. Því óskaði fréttastofa eftir upplýsingum um aðkomu þjóðaröryggisráðs, sem segir íslensk lög gilda um stöðina. Íslenskar stofnanir hafi yfirlit yfir búnað og aðgang að húsnæði og rannsóknargögnum - sé þess óskað.
En þjóðaröryggisráð sá ástæðu til þess að skoða starfsemina sérstaklega. Þekkt sé að kínverskar leyniþjónustustofnanir noti milliliði, eins og rannsóknir og tækniþróun, sem yfirskin til að skapa aðgang að upplýsingum.
„Evrópskar öryggisstofnanir, þar á meðal á Norðurlöndum, hafa bent á að kínverskar leyniþjónustur beiti fjölbreyttum aðferðum við ólöglega upplýsingaöflun, og þekkt sé að milliliðir séu notaðir, til dæmis stuðningur við rannsóknir og tækniþróun, til að skapa aðgang að upplýsingum. Í þessu ljósi hafa málefni Kárhóls komið til skoðunar hjá íslenskum stjórnvöldum, þar með talið á vettvangi þjóðaröryggisráðs“, segir í svari forsætisráðuneytisins.
Fréttastofa óskaði einnig upplýsinga um hvenær þjóðaröryggisráð hefði rætt málefni stöðvarinnar og hvort eftirlit með starfseminni og óheftur aðgangur að gögnum hefði verið frá því að starfsemi hófst. Því hefur ekki verið svarað þegar þessi frétt er skrifuð.