Tveir menn voru í gær dæmdir í fimm og sjö ára fangelsi fyrir að ræna ellefu ára stúlku í Birmingham á Englandi. Annar þeirra var einnig dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn henni. Stúlkan hafði strokið að heiman og taldi mennina ætla að hjálpa sér.
Mennirnir eru Hamza Sharif, 36 ára, og Sadak Ali, 28 ára.
Bauðst til að hjálpa en fór með hana í hús
Fram kom fyrir dómi að Sharif hefði hitt stúlkuna nærri lestarstöð í austurhluta Birmingham eftir að hún fór að heiman án þess að láta nokkurn vita. Hann þekkti hana ekki en bauð henni að koma með sér heim. Hún samþykkti það í þeirri trú að hann vildi hjálpa henni.
Ali var í húsinu þegar þau komu þangað. Stúlkunni var boðið kókaín en hún hafnaði því. Ali spurði hana síðan nærgöngulla spurninga um kynlíf og braut kynferðislega gegn henni með því að þukla á henni utan klæða.
Daginn eftir sögðust mennirnir ætla að fara með hana til konu sem gæti hjálpað henni. Vegfarandi greip þá inn í og kom stúlkunni til hjálpar.
Glímir enn við martraðir og ótta
Í yfirlýsingu stúlkunnar sem lesin var fyrir dómi kom fram að brotin hefðu haft varanleg áhrif á líf hennar.
„Ég hélt að maðurinn vildi hjálpa mér en það sem gerðist breytti mér að eilífu.“
Hún lýsti martröðum þar sem hún sæi mennina fyrir sér. Hún ætti erfitt með að treysta fullorðnum og óttaðist ennþá að þeir fyndu hana, þótt þeir væru í fangelsi.
Dómarinn hafnaði því að Sharif hefði ætlað að hjálpa
Verjandi Ali vísaði til áfalla sem hann hefði orðið fyrir í Sómalíu og sagði hann hafa leitað í áfengi og fíkniefni til að takast á við vanlíðan. Verjandi Sharif vísaði meðal annars til þess að hann hefði misst eiginkonu sína og frænda.
Dómarinn hafnaði þeirri skýringu að Sharif hefði gengið gott eitt til. Hann hefði átt fyrsta frumkvæðið og verið upphafsmaðurinn að barnsráninu. Mennirnir hefðu einangrað afar berskjaldað barn í talsverðan tíma án þess að hafa samband við lögreglu eða önnur yfirvöld.
Sharif fékk fimm ára fangelsi fyrir barnsrán. Ali fékk sjö ára fangelsi fyrir barnsrán og kynferðisbrot gegn barni undir þrettán ára. Báðir fengu einnig nálgunarbann og Ali verður á kynferðisbrotaskrá ævilangt.