„Maður trúði eiginlega ekki að þetta gæti gerst,“ sagði björgunarsveitarmaðurinn Magnús Einar Magnússon í Morgunútvarpinu á Rás 2 um snjóflóð sem féllu á Flateyri í janúar 2020.
Magnús tók þátt í björgunarstarfinu ásamt Ívari Kristjánssyni og félögum þeirra úr björgunarsveitinni Sæbjörgu á Flateyri. Tvö flóð féllu þennan dag og fóru bæði yfir varnargarðana. Fyrra flóðið fór í höfnina en það seinna fór yfir hús í bænum þar sem unglingsstúlku var bjargað.
Magnús og Ívar fjalla um björgunaraðgerðirnar í erindi á alþjóðlegu björgunarráðstefnunni Björgun 2026 í Hörpu um helgina.
Hlustaðu á viðtalið við Magnús Einar og Ívar í Morgunútvarpinu á Rás 2 í spilaranum hér fyrir neðan.
Allir á heimilinu vissu hvað var að gerast
Magnús var sex ára þegar snjóflóð féll á Flateyri í október 1995 með þeim afleiðingum að 20 fórust. Hann sagðist eiga margar minningar frá þeim atburðum sem hann var ekki viss um að væru réttar.
„Kannski bara af því að ég var búinn að heyra svo margar sögur frá þeim sem upplifðu þetta,“ sagði hann í Morgunútvarpinu á Rás 2.
„En snjóflóðið árið 2020 sannaði fyrir mér að þetta voru réttar minningar, ekki eitthvað sem ég hafði búið til. Það voru svipuð hljóð og fullt sem triggeraði hjá mér að þetta væru réttar minningar.“
Ívar var á leiðinni í háttinn eftir langan dag við sjómokstur þegar fyrra flóðið féll.
„Ég heyri þegar flóðið fer af stað. Það fór ekkert á milli mála. Allir á heimilinu vissu hvað væri að gerast. Þannig að ég hleyp út í glugga og þá sé ég snjóvegginn nálgast. Ég var ekki viss um hvort það væri að falla snjóflóð á húsið hjá mér því svo hvarf allt,“ sagði hann.
„Maður sér bara kófið koma. Risastór, hvítur snjóveggur og allt í einu skall hann á glugganum hjá mér.“
Ógurlegt öskur
38 mínútur liðu eftir að björgunarsveitarmenn komu á vettvang þangað til stúlkan var fundin. Hún var meðvitundarlaus þegar hún fannst og Ívar segir björgunarsveitarmenn hafa upplifað mikinn létti þegar hún rak upp ógurlegt öskur eftir að hún komst til meðvitundar.
„Ég held að mönnum hafi liðið eins og þetta tæki allt of langan tíma,“ sagði hann.
„Þetta er alveg gríðarlega erfitt, þú ert að moka kannski sama snjónum þrisvar sinnum og mannskapurinn var alveg búinn á því.“