Árásin átti sér stað nærri þorpinu Abu Falah á Vesturbakkanum. Íbúar þorpsins voru að safna uppskerunni þegar grímuklæddir landtökumenn, um áttatíu talsins, komu á vettvang og grýttu Palestínumennina.
Í frétt Reuters segir að sumir þeirra hafi notað slöngvur til að grýta Palestínumennina. Einhverjir þeirra síðarnefndu köstuðu grjóti á móti og notuðu líka slöngvur en þá komu ísraelskir hermenn á jeppum á svæðið og skutu táragasi að Palestínumönnunum.
Landtökumennirnir héldu áfram að kasta grjóti og brenna ólífutré, eftir að hermennina bar að garði. Ljósmyndari Reuters segist hafa séð að minnsta kosti einn landtökumann skjóta úr byssu.
Á meðan á þessu gekk réðst hópur manna að bandaríska ljósmyndaranum Heidi Levine, sem vinnur fyrir Washington Post.
Myndbönd af árásinni hafa verið í dreifingu á netinu í morgun.
This video captures settlers beating Heidi. They clubbed her, kicked her. Pulled her up off the ground to beat her more. Robbed her of all her equipment. If she didn’t have a helmet—and if she was Palestinian—she could be dead. https://t.co/hKV5coFvaD
— jasper nathaniel (@infinite_jaz) October 16, 2026
Í samtali við Reuters segir Levine að mennirnir hafi hrint henni í jörðina og sparkað ítrekað í hana. Hún segist þakklát fyrir að hafa verið með hjálm og í hlífðarvesti, því annars hefði hún mögulega látið lífið í árásinni. Þar hafi ekki hætt að sparka í hana fyrr en palestínskir samstarfsmenn hennar komu henni til aðstoðar og fluttu á sjúkrahús.
Auk hennar særðist einn annar en hann var skotinn af ísraelskum hermönnum.
Aukið ofbeldi landtökumanna
Ofbeldi ísraelskra landtökumanna í garð Palestínumanna á Vesturbakkanum hefur aukist til muna að undanförnu. Ráðist hefur verið á marga Palestínumenn við uppskeru og hefur ísraelski herinn gert lítið ef eitthvað til að stöðva landtökumennina.
Ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú hefur fjölgað landtökubyggðum á svæðinu til muna. Þessar byggðir eru ólöglegar en á Vesturbakkanum búa nú um fimm hundruð þúsund landtökumenn og þrjár milljónir Palestínumanna.
Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísraels og formaður HaTziyonut HaDatit, lýsti því yfir í síðasta mánuði að hann vildi að Ísraelar færu í stríð á Vesturbakkanum, leystu upp heimastjórnina og beittu þar sambærilegum aðferðum og á Gasaströndinni.