Matvælastofnun leggur áherslu á að fuglaeigendur hugi vel að smit- og sóttvörnum svo að fuglaflensa berist ekki í dýr í haldi. Skætt afbrigði hennar hefur greinst í villtum fuglum víða um land að undanförnu. Afbrigðið greindist í villtum spendýrum og köttum á Íslandi í fyrra.
Fuglainflúensa hefur greinst í mávategundum og öndum í þremur landshlutum síðustu vikur. Beðið er eftir niðurstöðum úr frekari rannsóknum.
Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir segir ástæðu til að fylgjast vel með fuglum, villtum spendýrum og köttum. Það eru þrjú viðbúnaðarstig og nú er óvissustig.
„Óvissustig er fyrsta stigið og það þýðir að það eru taldar miðlungslíkur á að smit geti borist í alifugla eða aðra fugla í haldi eða spendýr,“ segir Þóra.
Mikilvægt er að veikin berist ekki í fugla í haldi. Þar skiptir miklu máli að alifuglabændur og aðrir sem halda fugla hugi að smitvörnum.
Almenningur er beðinn um að tilkynna Matvælastofnun og sveitarfélögum um veika eða dauða fugla og spendýr.
Ekki er talin mikil áhætta á smiti til almennings. Þeir sem hafa smitast á heimsvísu eru aðallega einstaklingar sem hafa verið í nánu samneyti við smitaða fugla.
„En það er samt fullástæða fyrir almenning og dýralækna kannski líka að vera á varðbergi og gæta smit- og sóttvarna við handfjötlun á dauðum eða veikum fuglum. Þá erum við að horfa til þess að nota hanska, veiruheldar grímur og hlífðargleraugu,“ segir Þóra.
Veiðimenn eru einnig beðnir um að vara sig á að veiða fugla sem hegða sér óeðlilega. Mikilvægt er að fullelda kjöt.
Fálkinn viðkvæmur
Fálkar virðast vera mjög viðkvæmir fyrir fuglaflensu. Þeir eru ránfuglar sem eykur líkur á smiti. Verði fuglaflensa áfram útbreidd meðal villtra fugla hér á landi gætu dagar fálkans verið taldir.
Þóra vekur máls á því að hægt sé að nýta bólusetningar til að vernda viðkvæmar fuglategundir frá fuglainnflúensu.
„Það er kannski það sem þarf að skoða ef staðan verður of alvarleg,“ segir hún.