Einnig verður greint frá því að Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og sýknað mann af ákæru fyrir nauðgun. Konan hlaut margþætta áverka á borð við beinbrot. Talskona Stígamóta kallar eftir endurmenntun í Landsrétti og segir dóminn ótrúleg skilaboð út í samfélagið. Allir virðist mega ef rætt sé um BDSM.
Þá verður fjallað um Lífeyrissjóð verzlunarmanna, sem íhugar að kalla eftir skýringum frá stjórnendum Ölgerðarinnar vegna rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á fyrirtækinu. Sjóðurinn er einn tíu lífeyrissjóða sem eiga samanlagt tæplega helming í móðurfélagi Ölgerðarinnar. Í hluthafastefnu sjóðsins er lögð áhersla á að fyrirtæki fari að samkeppnislögum.
Einnig verður rætt um kynningu á nýrri Teslu bifreið, sem fullyrt er að geti flogið. Um snjalla markaðsbrellu virðist vera að ræða, að sögn bílafréttamanns og markaðsfræðings. Almenningur sé varla að fara að fljúga um lágloftin í nánustu framtíð, en bíllinn sé þó áhugaverður og til marks um að tækninni fleygi fram.
Hádegisfréttir á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður og þulur er Telma L. Tómasson.