James Hetfield, söngvari bandarísku þungarokkssveitarinnar Metallica, hefur vakið reiði margra með ummælum sínum um pólitík og áhrifavalda. Roger Waters, úr Pink Floyd, sparar ekki stóru orðin um Hetfield og segir hann með lága greindarvísitölu.„Metallica er ekki hér, eins og sumir aðrir skemmtikraftar, til að hafa áhrif á þig með bullinu sínu, ok? Við erum hér til að gleyma öllum utanaðkomandi skít. Metallica snýst um ást, orku og þunga tónlist, beibí!“
James Hetfield lét umdeild ummæli um pólitík falla og fékk það óþvegið frá Roger Waters – „Algjört fífl“