Forstjóri CCEP á Íslandi, Anna Regína Björnsdóttir, segir að fyrirtækið hafi orðið vart við ýmislegt á drykkjarvörumarkaðnum á Íslandi sem hafi vakið spurningar um heilbrigða viðskiptahætti. Fréttastofa leitaði eftir viðbrögðum CCEP, sem áður hét Vífilfell, við rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Ölgerðinni og meintri misnotkun fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu.
Vífillfell er framleiðandi kók á Íslandi og Ölgerðin er með pepsí. Samkeppni fyrirtækjanna í gegnum áratugina hefur hverfst um þessa tvo drykki sem verið hafa þeirra helstu tákn.
Anna Regína segir meðal annars um rannsóknina í svörum sínum í tölvupósti: „Við viljum heilbrigða og virka samkeppni á markaði og teljum það alvarlegt ef fyrirtæki fara ekki að lögum og reglum. Við treystum því að rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiði í ljós hvort svo hafi verið í þessu tilviki. [...] Það ríkir hörð samkeppni á þessum markaði og við höfum orðið vör við ýmislegt í gegnum tíðina sem hefur vakið spurningar hjá okkur um heilbrigða viðskiptahætti. Það er hins vegar hlutverk Samkeppniseftirlitsins að meta hvort um brot hafi verið að ræða og við treystum því ferli.“
Svör Önnu Regínu eru birt í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag þar sem fjallað er um samkeppnina og ríginn á milli þessara tveggja fyrirtækja. Þáttinn má hlusta á hér:
Segir CCEP ekki gera einkaréttarsamninga
Eitt af því sem fréttastofa spurði Önnur Regínu að er hvort CCEP geri sambærilega einkaréttarsamninga og Ölgerðin er sögð gera. „Nei, við gerum ekki einkasölusamninga við viðskiptavini okkar, hvorki veitingahús né aðra aðila. Við setjum okkur ekki upp á móti heilbrigðri samkeppni.“
Slíkir einkaréttarsamningar eru eitt það helsta sem er undir í rannsókninni á Ölgerðinni. Með slíkum samningum eru viðskiptavinir fyrirtækis skuldbundnir til þess að eiga eingöngu í viðskiptum við eitt fyrirtæki en ekki önnur og getur slíkt dregið úr samkeppni á markaði. Oft fá fyrirtæki sem gera slíka einkaréttarsamninga afslætti, lán og mögulega aðra fyrirgreiðslu fyrir að halda tryggð við aðeins einn birgja.
Var viðtekin venja að kaupa eigin vörur
Anna Regína er líka spurð að því hvort CCEP stundi það að kaupa eigin vörur hjá ÁTVR líkt og komið hefur fram opinberlega að tíðkist á drykkjarvörumarkaði.
Anna Kristín Þráinsdóttir, forstjóri ÁTVR, hefur sagt að þetta virðist tíðkast enn samkvæmt tölum og gögnum frá ríkisfyrirtækinu.
Anna Regína segir aðspurð um þetta: „Fyrir mörgum árum var það viðtekin venja að birgjar keyptu eigin vörur í því skyni að styrkja stöðu þeirra í vöruvali ÁTVR. CCEP hætti þessu hins vegar fyrir löngu síðan og okkar skilningur er sá að ÁTVR hafi girt fyrir þetta almennt séð. Fyrir rúmum tveimur árum urðum við hins vegar vör við að aðrir birgjar væru farnir að stunda þetta aftur.“
Anna Regína segir að í kjölfarið á þessu hafi fyrirtækið ákveðið að prófa að kaupa eigin vörur í ÁTVR í tilraunaskyni: „Við ræddum stöðuna opinskátt við ÁTVR og spurðum hvort til stæði að breyta regluverkinu, en niðurstaðan úr því samtali var að þeim væru skorður settar í því hvernig starfsemi þeirra er háttað. Því varð úr að við ákváðum nýlega, í tilraunaskyni, að prófa að kaupa eigið léttvín í litlu magni. Þetta var gert fjórum sinnum vegna fjögurra léttvínstegunda og vörðum við 72.000 til 118.000 krónum í hvert skipti. Hlutdeild okkar í léttvíni hjá ÁTVR er ekki há enda höfum við lagt meiri áherslu á sölu á veitingamarkaði.“
Háttsemi Ölgerðarinnar geti hlutdeild á markaði
Anna Regína er einnig spurð að því af hverju Ölgerðin hafi að hennar viti vaxið hratt á liðnum áratug og orðið stærra fyrirtæki á drykkjarvörumarkaði en CCEP. Hún segir mögulegt að ein af ástæðunum fyrir þessu sé samkeppnishegðun fyrirtækja eins og Ölgerðarinnar á markaði. „Drykkjarvörumarkaðurinn er mun fjölbreyttari í dag en hann var fyrir 20 árum, eins og neytendur þekkja. Nú keppa mun fleiri aðilar á markaðnum og vöruframboð hefur aukist verulega. Á sama tíma hefur vöruframboð CCEP einnig þróast í takt við langtímamarkmið félagsins og megináhersla lögð á gæði, þjónustu og traust samband við okkar viðskiptavini. Breytingar á markaðshlutdeild yfir svo langt tímabil geta átt sér margar skýringar, þar á meðal samkeppnishegðun keppinauta, og við treystum því að skoðun Samkeppniseftirlitsins varðandi háttsemi Ölgerðarinnar leiði í ljós hvaða áhrif hún hafi haft.“
Með þessum orðum er Anna Regína að vísa til þess að sú háttsemi Ölgerðarinnar sem er til rannsóknar kunni að hafa hjálpað fyrirtækinu að komast í þá sterku stöðu á markaði sem það er með í dag.