Þór Saari segir alkóhólisma setja mark sitt á Viðreisn

Þór Saari, fyrrverandi þingmaður Hreyfingarinnar, lætur þung orð falla um Viðreisn og forystu flokksins í umræðu um ákvörðun Jóns Gnarr að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Þór tengir starfsemi flokksins við það sem hann kallar alkóhólískan hugsunarhátt og gengur svo langt að tengja hann við alkóhólisma félagsmanna og forystu flokksins.
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar í gær og hyggst starfa sem þingmaður utan þingflokka. Hann sagði ákvörðunina meðal annars tengjast því að ákveðin mál sem hann hefði lagt mikla áherslu á hefðu ekki fengið þann forgang sem hann vildi.
„Ég kem inn í þetta samstarf með ákveðnar væntingar um ákveðnar aðgerðir og þá sérstaklega í málefnum barna í flóknum vanda, alvarlegum vanda. Ég hef beitt mér mjög persónulega í því,“ sagði Jón.
Hann hefði viljað sjá málaflokkinn ofar á forgangslista þingflokksins.
„Ég vildi að það væri ofar á forgangslista þingflokksins og ég hef viljað fá það framar, ofar, á forgangslistann en það hefur kannski ekki verið nægilega ofarlega finnst mér.“
Jón nefndi einnig frelsismál sem mikilvægan þátt í ákvörðun sinni.
„Frelsismál sem eru mér mjög kær, einstaklingsfrelsi og athafnafrelsi, ég er ósáttur við það,“ sagði Jón.
Þór tengir Viðreisn við alkóhólisma
Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, velti ákvörðun Jóns fyrir sér á Facebook og gagnrýndi rökstuðning hans. Hann sagði alla þingmenn vera með eigin markmið og vilja koma fjölmörgum málum áfram.
Þór Saari blandaði sér í umræðuna og setti fram mun harðari fullyrðingar um Viðreisn.
„Mér sýnist Jón Gnarr einfaldlega hafa áttað sig á því að Viðreisn sem stjórnmálaflokkur og sem þingflokkur Viðreisnar sé fyrst og fremst drifin áfram af alkóhólískum hugsunarhætti sem að sjálfsögðu á rætur að rekja í alkóhólisma félagsmanna og forystu.“
Þór bætti síðan við
„Það væri svo sem ekkert nýtt á þeim bæ sem íslensk stjórnmál eru.“
Björn Leví hafnar orðum Þórs
Björn Leví svaraði Þór og hafnaði þessari lýsingu á Viðreisn.
„Það er ekki reynsla mín af þingflokki Viðreisnar. Og hef ég unnið þó nokkuð með þeim,“ skrifaði Björn.
Hann tók síðan af allan vafa um afstöðu sína.
„Þannig að nei. Þú hefur rangt fyrir þér með þetta.“
Orð Þórs vekja spurningar um ábyrgð fyrrverandi kjörinna fulltrúa í opinberri umræðu, sérstaklega þegar settar eru fram alvarlegar fullyrðingar um persónuleg málefni heils hóps stjórnmálamanna.