Viðbótarfjármagnið sem á að renna til námsgagna er aðeins lítið brot af þeirri innviðaskuld sem ríkir í málaflokknum. Samkvæmt útreikningum sérfræðings hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu fyrir nokkrum árum þarf 5,5 milljarða til að vinda ofan af uppsöfnuðum skorti.
Þetta kom fram í Síðdegisútvarpinu í gær. Þar voru Íris E. Gísladóttir, formaður stjórnar Þróunarsjóðs námsgagna, og Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu, til viðtals um stöðu námsgagna á Íslandi.
Þau telja tímabært að endurskoða núverandi kerfi námsgagnaútgáfu á Íslandi. Ríkiseinokun á útgáfu námsgagna til grunnskólastigsins hafi kannski þótt eðlileg fyrir tæpum hundrað árum en sé það ekki lengur í dag.
Skref í rétta átt
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi í síðasta mánuði að ráðuneytið ætlaði að leggja 455 milljónir til viðbótar í námsgögn. Þetta var ein af aðgerðunum sem kynntar voru vegna árangurs íslenskra nemenda á PISA 2025, sem hefur aldrei mælst verri.
Fjárveitingin er háð samþykki fjárlagafrumvarpsins 2027. Athygli vekur að sú upphæð er 145 milljónum lægri en viðbótarframlagið sem Inga hafði í sumar sagst ætla að veita til málaflokksins. Þá ætlar ráðherra að setja frumvarp um ný heildarlög um námsgögn á ís.
Frumvarpið, sem var ætlað að bæta úr slakri stöðu námsgagna, hefur fjórum sinnum ratað á þingmálaskrá og tveir forverar Ingu í embætti hafa mælt fyrir því. Það náði þó aldrei í gegn og ekki er víst að það verði lagt aftur fram.
„Áhugavert“ fyrirkomulag
„Sérfræðingur hjá ráðuneytinu, þegar ég var að vinna í stýrihóp þar, var búinn að reikna saman að það væru eflaust svona 5,5 milljarðar sem að tæki til að snúa þessari innviðaskuld við,“ sagði Íris í Síðdegisútvarpinu í gær.
Íris sagði auk þess liggja á huldu hvernig þessu viðbótarfjármagni yrði úthlutað og benti á að fyrirkomulag námsgagnaútgáfu á Íslandi hefði margsinnis verið gagnrýnt.
„Þetta er einn af fáu stöðunum þar sem við erum með ríkisútgáfu námsgagna. Mér finnst þetta ótrúlega áhugavert.“
Ríkið gæti ákveðið að breyta þessu fyrirkomulagi og nýtt viðbótarfjármagnið í að styrkja Námsgagnasjóð.
„Þá í raun hefðu kennararnir okkar, sem eru á hverjum einasta degi að vinna með nemendum, bein áhrif á það hvaða námsgögn þeir væru að nota. Þá er miklu líklegra að það verði til fjölbreytt námsefni en ekki bara nýtt kjarnaefni.“
Hljómaði ekki galið á síðustu öld en er það núna
Heiðar Ingi tók í sama streng.
„Við erum að glíma við kerfisvanda,“ sagði Heiðar.
„Við erum búin að vera - frá því að við held ég öll munum eftir okkur, erum við búin að vera með ríkiseinokun á útgáfu námsgagna fyrir allt grunnskólastigið. Þetta kannski hljómaði ekkert galið þarna nítján hundruð fjörutíu og eitthvað þegar þetta var sett, en hljómar náttúrlega galið núna.“
Þannig hafi meðal annars stærstu alþjóðasamtök útgefenda bent á að þetta fyrirkomulag sé ógn við prent-, tjáningar- og skoðanafrelsi.