Lögreglan hefur komist í samband við tvo erlenda ferðamenn sem keyrðu langar leiðir utan vegar á Emstruleið, frá Einhyrningi inn að Álftavatni og við Kötlu, og kallað þá til yfirheyrslu.
Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.
Hann segir ökumennina eiga yfir höfði sér háar sektargreiðslur vegna athæfisins, jafnvel upp á mörg hundruð þúsund krónur. En sektarupphæðin sé ákvörðuð út frá alvarleika brotsins hverju sinni.
Þorsteinn segir lögregluna líta utanvegaaksturinn alvarlegum augum. „Við höfum ýmislegt séð ljótt og þetta er í ljóta flokknum.“
Greint var frá því fyrr í dag að trússarinn Klemenz Geir Klemenzson og ökuleiðsögukonan Margrét Herborg Nikulásdóttir hefðu haft afskipti af mönnunum og beint þeim á að slíkt athæfi væri ólöglegt á Íslandi.
Þeir hafi hins vegar ekki látið segjast og haldið iðju sinni áfram. Margrét sagði mennina hafa yppt öxlum og sagst hafa gert mistök. Skömmu síðar hafi hún hins vegar rekist á þá aftur.