Í tilkynningu segir að eftir að lögregla stöðvaði manninn hafi komið í ljós að hann væri ekki með ökuréttindi en í tilkynningu segir að á meðan „þessum afskiptum“ stendur hafi hann farið af vettvangi.
Lögregla hafi þá hafið eftirför en ökumaðurinn ekki sinnt stöðvunarskyldu auk þess sem hann sýndi ekki varúð, ók yfir leyfilegum hámarkshraða og á móti akstursstefnu.
Hann hafi síðar stöðvað bílinn í Reykjanesbæ vegna bilunar og þá verið handtekinn. Hann bíður nú þess að vera yfirheyrður vegna málsins.
Veistu meira um eftirförina, hvar á Reykjanesbraut hún átti sér stað og/eða ertu með myndefni af henni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér .
Veistu meira um eftirförina, hvar á Reykjanesbraut hún átti sér stað og/eða ertu með myndefni af henni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér .