Vinnuvélar og tæki sem keypt eru frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins, og flutt hingað til lands, standast ekki öryggiskröfur.
Netverslunin Ali Express er með vinnuvélar og tæki til sölu á mun lægra verði en gengur og gerist hérlendis.
Vinnueftirlitið varar þó við kaupum og hefur stöðvað innflutning á fjölda vinnuvéla sem uppfylla ekki öryggiskröfur.
Lögmaður hóps manna, sem hefur orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna aðgerða Vinnueftirlitsins, segir mennina beitta ólögmætum viðskiptahindrunum.
Verðmunurinn mikill en öryggið mikilvægara
Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinnueftirlitsins, segir að í 350 tilfellum hafi Vinnueftirlitið óskað eftir frekari gögnum um vélar sem hafa verið fluttar inn til landsins.
Af þeim 350 málum hafa 40 mál verið skoðuð nánar.
„Og við höfum bannað markaðssetningu í 17 þeirra,“ segir Hanna Sigríður.
Málin sautján tengjast innflutningi á fjölda vinnuvéla sem flestar voru keyptar á kínverska sölutorginu Ali Express.
Til þess að innflutningur sé heimilaður þurfa vinnuvélar að vera CE merktar; uppfylla samevrópskar kröfur um öryggi og gæði.
Hanna Sigríður segir kröfurnar settar til að tryggja öryggi stjórnanda vélarinnar og þeirra sem vinna í kringum þær.
„Þess vegna höfum við lagt mikla áherslu á að þessar reglur séu í gildi og það eru engar undanþágur frá þeim.“
Hérlendis getur tveggja tonna, CE merkt, beltagrafa kostað allt frá tæpum fimm milljónum með virðisaukaskatti.
Á Ali Express má sjá vinnuvélar og landbúnaðartæki auglýst á verði sem er brot af því.
Fylgigögn eiga oft við aðrar vélar
Flestir kaupa vélarnar í góðri trú en langan tíma getur tekið að fá nauðsynleg gögn frá framleiðendum.
Hanna Sigríður segir mörg dæmi um það að fylgigögn með vélum líti ágætlega út í fyrstu en við nánari skoðun reynist þau röng eða ófullnægjandi.
„Og geta jafnvel átt við aðrar vélar en þær vélar sem koma svo hingað til landsins.“
Kaupendur hafa því margir setið eftir með sárt ennið.
Ein kæra hefur borist félags- og húsnæðismálaráðuneytinu vegna ákvarðana Vinnueftirlitsins.
Hanna Sigríður hvetur alla til að kynna sér vel hvort vinnuvélar og tæki séu með gilda CE merkingu áður en innflutningur á sér stað.
„Og jafnframt þá líka að kanna hvort framleiðandinn geti ekki framvísað viðeigandi gögnum sem er þá að sýna fram á að vélin uppfylli kröfurnar.“
Kaupendur geta reiknað með að þurfa sjálfir að standa undir kostnaði við förgun véla sem ekki uppfylla öryggiskröfur.
Dæmi um fjóra fulla gáma af vélum sem er vísað úr landi
Kaupendur geta reiknað með að þurfa sjálfir að standa undir kostnaði við förgun véla sem ekki uppfylla öryggiskröfur að mati Vinnueftirlitsins, en fjórir fullir gámar af vinnuvélum voru sendir úr landi á kostnað innflytjenda.
Lögmaður hóps manna sem hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þessa gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögðin í bréfi til Vinnueftirlitsins.
Reglugerðin um öryggiskröfur sé fallin úr gildi og Vinnueftirlitinu sé skylt að gefa þeim sem flytur inn vél tækifæri til að breyta henni svo hún uppfylli öryggisskilyrði.