Þrír listar eru í framboði í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mættust í umræðum. Þátttakendur voru:
- Ásrún Helga Kristinsdóttir, Framsóknarflokki
- Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Sjálfstæðisflokki
- Magnús Már Jakobsson, Miðflokki
Umsjónarmaður er Ingvar Þór Björnsson.
Endurreisn samfélagsins í Grindavík og niðurstaða Grindavíkurnefndar var oddvitum ofarlega í huga. Endurskoðun tekjustofna sveitarfélagsins, líðan barna og skólastarf, atvinnulífið og stjórnsýslan bar einnig á góma.
819 eru með skráða búsetu í bænum. Grindavík var meðal 20 stærstu sveitarfélaga landsins þar til bærinn var rýmdur í nóvember 2023 og brottfluttum íbúum gafst kostur á að skrá sig þar á kjörskrá. Óvenjuleg staða bæjarfélagsins gefur sérstakt tilefni til oddvitaumræðna þar.