Niðurskurðurinn sem boðaður er í framhaldsskólum landsins í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fimm ára er sennilega meiri en áður hefur sést hér á landi að sögn Félags framhaldsskólakennara (FF). Skólastigið hefur þegar verið fjársvelt um árabil en félagið segir áframhaldandi niðurskurðarstefnu stofna menntun ungmenna í hættu.
Í nýrri fjármálaáætlun er ráðgert að fjárframlög til framhaldsskóla dragist saman um 7,1% á næstu fimm árum, fari úr 53,2 milljörðum árið 2027 í um 49,4 milljarða árið 2031. Þetta er meiri niðurskurður en gert hafði verið ráð fyrir í fyrri fjármálaáætlun en hann á sér stað á sama tíma og stærstu árgangar Íslandssögunnar til þessa hefja framhaldsskólanám.
Guðjón Hreinn Hauksson formaður FF telur að niðurskurðurinn muni bitna verulega á námi nemenda. Til að mynda muni þurfa að skera niður námsbrautir og draga úr stoðþjónustu.
„Það er búið að vera að flysja þetta niður áratugum saman og nú á að gera þetta enn verra. Við horfum fram á tíma næstu árin sem verða bara óbærilegir fyrir starfsfólk framhaldsskólanna,“ segir Guðjón.
Í ályktun aðalfundar FF frá mars á þessu ári kemur fram að útgjöld hins opinbera til framhaldsskólastigsins hafa verið skorin niður kerfisbundið allt frá aldamótum. Frá 1998-2024 hafa heildarútgjöld til fræðslumála hækkað um 16% á mann á föstu verðlagi – en útgjöld til framhaldsskólastigsins lækkað um 22% á sama tímabili.
„Þessi stefna er ósjálfbær og stofnar menntun ungmenna í hættu. Framhaldsskólakennarar standa í framlínu og bera á herðum sér afleiðingar áratuga vanfjármögnunar – aukið álag, stærri námshópa, úr sér gengna aðstöðu og skort á stuðningi,“ segir í ályktun aðalfundar FF.
Félagið hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlunina þar sem niðurskurðurinn er gagnrýndur harðlega, hann sagður grimmilegur og ganga beint gegn atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar sem var samþykkt í síðasta mánuði sem og fyrirheitum mennta- og barnamálaráðuneytisins um að fjárfesta í framtíð landsins.
Lesa má nánar um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag