Toyota í Kauptúni býður landsmönnum til sannkallaðrar sumarveislu á morgun, laugardag, þar sem fjölskylduvæn dagskrá, tónlist og skemmtun verða í forgrunni. Búast má við miklu lífi og fjöri í húsakynnum fyrirtækisins þegar gestir fá tækifæri til að kynna sér nýjustu bílana frá Toyota ásamt því að njóta ýmissa uppákoma fyrir alla aldurshópa.
Það eru umfangsmiklar framkvæmdir á bílaplani fyrirtækisins í Kauptúni og því var ákveðið að breyta hefðbundnum þjónustudegi Toyota í sérstakan fjölskyldudag í ár. Þjónustudagurinn hefur verið fastur liður í starfsemi Toyota um áratugaskeið og þar hefur viðskiptavinum meðal annars verið boðið upp á bílaþvott og aðra þjónustu.
„Við höfum verið með þjónustudag síðustu áratugi og nú, vegna breytinga hjá okkur og framkvæmda á bílaplaninu, ákváðum við að breyta þessu í svona fjölskyldudag,“ segir Haraldur Þór Stefánsson, framkvæmdastjóri Toyota á Íslandi, í samtali við mbl.is.
Haraldur segir að lögð hafi verið áhersla á að skapa skemmtilega stemningu fyrir alla fjölskylduna. „Þetta verður bara alger gleði, það verður karókí og ýmsar skemmtilegar uppákomur,“ segir hann.
Íþróttaálfurinn og Solla stirða
Meðal þess sem verður á dagskrá er sýning Íþróttaálfsins og Sollu Stirðu sem stíga á svið klukkan 13.30 og ættu að gleðja yngstu gestina sérstaklega. Þá mun skemmtikrafturinn Sandra Barillí halda uppi fjörinu með karókíi þar sem gestir geta tekið lagið.
Tekið verður á móti gestum í útibúi Toyota í Kauptúni frá klukkan 12 til 16 og boðið verður upp á léttar veitingar yfir daginn.
Sumarhátíðin markar einnig ákveðin tímamót hjá Toyota því samhliða henni verður nýr og endurbættur sýningarsalur fyrirtækisins kynntur gestum. Að sögn Haraldar hefur salurinn tekið miklum breytingum á undanförnum misserum með það að markmiði að bæta bæði aðstöðu viðskiptavina og starfsfólks.
„Við erum búin að gjörbreyta salnum sem er bæði til hagsbóta fyrir viðskiptavini og starfsfólk,“ segir Haraldur. Nýjar innréttingar hafa verið settar upp, aðstaða fyrir gesti hefur verið bætt til muna og sérhönnuð lýsing gerir það að verkum að bílarnir njóta sín mun betur í nýju umhverfi.
Stærri og kraftmeiri útgáfa af bZ4X
Í sýningarsalnum verður jafnframt hægt að skoða nýjustu línu Toyota, þar á meðal nýjan RAV4 og nýjustu rafmagnsbílana Urban Cruiser, C-HR+ og bZ4X. Sérstaka athygli vekur þó forsýning á bZ4X Touring, stærri og kraftmeiri útgáfu af bZ4X sem þegar hefur vakið mikla athygli á markaðnum.
„Nýr bZ4X Touring verður þarna til sýnis en það er virkilega spennandi bíll,“ segir Haraldur Þór. „Þetta er öflugur rafmagnsbíll með meira rými og aukna fjölhæfni sem hentar vel íslenskum aðstæðum og fjölskyldulífi,“
Með nýjum sýningarsal, bættri aðstöðu og fjölskylduskemmtun í stað hefðbundins þjónustudags ætlar Toyota því að bjóða gestum upp á bæði nýjungar og notalega stemningu um helgina.
