Þá má sjá Potter finna merkilegan spegil, spila Quidditch og ýmislegt annað.
Þetta er önnur stiklan sem birt er fyrir útgáfu þáttanna.
Sjá einnig: Margt að sjá í nýrri stiklu fyrir þættina um Harry Potter
Francesca Gardiner hefur yfirsýn yfir þættina (e. show-runner), Mark Mylod er leikstjóri þeirra og J.K. Rowling yfirframleiðandi þeirra.
Fyrsta þáttaröðin á að fjalla um Viskusteininn, eins og fyrsta bókin gerði og fyrsta kvikmyndin. Þættirnir verða frumsýndir um jólin.